raforkulög.
Virðulegi forseti. Það stendur ekki á mér. Mitt fólk í ráðuneytinu hefur setið sveitt núna í margar vikur við það að koma málum inn í þingið. Ég er með held ég 15 eða 16 mál á þingmálaskrá. Flest þeirra lúta að umgjörð orkumarkaðar og framboðshlið orkumálanna. Þannig að ég bara tek þessari hvatningu hv. þingmanns og minni á að þetta er fyrsta löggjafarþing þessarar nýju ríkisstjórnar þar sem er samstaða um aukna orkuöflun. Ég veit að það má ekki tala ensku í ræðustól en ég ætla samt að segja bara „you ain't seen nothing yet“.