raforkulög.
Frú forseti. Við höfum rætt þetta mál hér í dag sem snýr að raforkuviðskiptunum og breytingu á raforkulögum. Þetta eru þessi tvö atriði, sem er bara jákvætt. Hér er raunverulega verið að mæla fyrir tilteknum hátternisreglum í raforkuviðskiptum og eftirliti til að stuðla að gegnsæi og heiðarleika á raforkumarkaði og hins vegar eru það markaðssvikin, ólögmæt innherjaviðskipti, skráning markaðsaðila og tilkynningarskyld viðskipti. Það er mikið að gerast í atvinnuveganefnd tengt málefnum ráðherrans og orkumálum og því ber að fagna. Ég held að það sé eitt af stóru málunum, sem er náttúrlega kannski að einhverju leyti verið að fást við í þessu máli hér, að reyna að forðast alla blýhúðun í regluverkinu sem snýr að raforkumálunum.
Það er allt annað yfirbragð yfir nýju Samfylkingunni varðandi þessi raforkumál heldur en var á síðasta kjörtímabili. Því ber að fagna í þessari umræðu. Það er ánægjulegt að það sé þetta mikill samhljómur almennt í málunum sem snúa að raforkumálunum. Þetta er einhvern veginn allt önnur nálgun hjá flokki hæstv. ráðherra, sem ber að fagna. Þetta er einn af þáttunum kannski sem ég kom inn á í minni ræðu áðan varðandi hvað helst þarf að gera. Einn af fjórum punktunum þar var að byggja upp gagnsætt viðskiptaumhverfi eins og við erum að ræða hér.
Mig langaði rétt í lokin hins vegar að koma inn á raforkuöryggið sem við erum að ræða í atvinnunefnd þessa dagana. Við höfum komið töluvert inn á raforkuöryggið. Hefði ekki þurft að vera kannski hnitmiðaðra frumvarpið sem snýr að raforkuörygginu (Forseti hringir.) og talað bara út frá þjóðaröryggishagsmunum með skýrari hætti eins og er að koma fram hjá umsagnaraðilum við málið (Forseti hringir.) inni í hv. atvinnuveganefnd, sem snýr að þjóðaröryggismálum í þessu, (Forseti hringir.) og talað bara svolítið skýrt um þann þátt þegar við erum að ræða raforkumálin?