156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[17:46]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það var eiginlega það sem ég var að reyna að koma inn á varðandi raforkuöryggisfrumvarpið. Þetta er raunverulega um þjóðaröryggi. Þetta er raunverulega um þegar allt er farið, þegar við erum komin í slík vandræði, hvernig eigi þá að bregðast við, hvort sem það er vegna náttúruvár eða einhverra hluta sem við tölum varla um eða getum talað um, það fer allt raunverulega eins illa og það getur farið. Þannig lít ég á það. Það hefði kannski verið eðlilegast að það hefði bara verið skrifað svolítið inn í frumvarpið með beinskeyttari hætti heldur en það sem kannski er komið inn á, svona miðað við hvernig hlutir hafa verið að þróast almennt. (Umhvrh.: Skrifa það inn í nefndarálitið.)

Síðan vegna ánægju minnar vegna orkustefnu Samfylkingarinnar. Kannski var það einmitt eitthvað óskýrt hjá mér. Þetta hefur kannski náð aðeins inn í seinni hluta síðasta kjörtímabils, mögulega fyrir tveimur árum eða svo sem stefna Samfylkingarinnar í þessum málum gjörbreyttist. Sá sem hér stendur er gríðarlega ánægður með þá nálgun, hvernig allt saman breyttist miðað við hvernig umræðan hafði verið árin þar á undan hér í þingsal sem sneri að orkumálum, hvort sem við vorum að ræða rammaáætlun eða eitthvað annað tengt orkumálunum. Það er sá þáttur sem fyrst og fremst ber að fagna. Sú nálgun sem er í dag er miklu nær, eins og við sjáum bara í þessum málum sem eru að koma núna sem snúa að orkumálunum og dælast úr ráðuneytinu. Auðvitað er mikið af vinnu sem er búin að fara fram á undanförnum árum og hefur verið unnið með sem er að skila sér núna hér inni í þingsal. Það sem við erum að upplifa núna er allt önnur umræða heldur en við höfum verið að takast á við á síðustu þingvetrum. Það er mjög jákvætt (Forseti hringir.) og ég stend með hæstv. ráðherra í öllum góðum málum sem snúa að raforkumálum þjóðarinnar (Forseti hringir.) á öllum sviðum.