156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

raforkulög.

251. mál
[17:48]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað alltaf gaman að tala um það hvernig stjórnmálaflokkar þróast og breytast. Við getum talað um það þegar formaður Sjálfstæðisflokksins var með miklar yfirlýsingar fyrir örfáum árum gegn háspennulínum bara nánast almennt. Við getum talað um það þegar Sjálfstæðisflokkurinn var á rauða takkanum þegar Þeistareykjavirkjun fór í orkunýtingarflokk rammaáætlunar. (NTF: Nei.) Jú. Hv. þingmaður rifjar það oft upp hér í þingsal að … (Gripið fram í.)(Forseti (EÁs): Ekki frammíköll.) rifjar það oft upp hér í þingsal (Gripið fram í.) að tilteknir þingmenn Samfylkingarinnar hafi verið á gula takkanum þegar síðasta rammaáætlun var samþykkt. (NTF: Þið voruð iðulega á honum.)(Forseti (EÁs): Ekki frammíköll í þingsal.) Hv. þingmaður var á rauðu þegar framfaramálið Þeistareykjavirkjun (Gripið fram í.) fór í orkunýtingarflokk. (Forseti (EÁs): Ekki frammíköll, samtal í þingsal.)

Við getum talað endalaust um fortíðina. Það sem skiptir máli núna er að halda áfram að ná árangri fyrir land og þjóð og mér heyrist bara ágætissamstaða um það, um flest þessara mála sem ég er að leggja hér fram. Ég er reyndar pínulítið hissa, án þess að ég ætli að hafa sérstaka skoðun á því hversu lengi þingmenn tala, en miðað við hvað það eru að koma hingað inn á færibandi mörg góð mál sem lúta að orkumarkaði þá er ég pínulítið hissa á því hvað það hefur farið mikið púður í umræðu um þetta mál í það að tala um eitthvað allt annað heldur en efnisatriði þessa frumvarps. Auðvitað er eðlilegt að víkja bara almennt talinu að orkumálum en mér finnst, og ég ætla ekki að fara að saka neinn um málþóf en það kemur mér á óvart í ljósi þess hvað við erum að koma með mörg mikilvæg mál inn í þingið — sum þeirra eiga að einhverju leyti rætur í vinnu sem fór af stað á vakt hv. þingmanns þegar hann var í umhverfis- og samgöngunefnd. En ég alla vega vona að við getum komið þessum málum hratt og vel inn í þingið til þeirra nefnda sem um þau fjalla til þess að við getum svo komið þeim í gegn og gert þau að lögum á næstu vikum og mánuðum.