156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:51]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis og orkumála.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins kemur fram að ferli leyfisveitinga verði einfaldað, tímafrestir lögbundnir og verkefni í orkunýtingarflokki rammaáætlunar verði látin njóta sérstaks forgangs í stjórnsýslu orkumála.

Eins og við höfum farið yfir hér í dag þá hefur skapast verulegt ójafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á raforkumarkaði á undanförnum árum. Stærsta ástæðan fyrir því er auðvitað sú að orkuöflun hefur ekki haldið í við vaxandi umsvif í samfélaginu. Þarna er þunglamalegum leyfisferlum að einhverju leyti um að kenna, sem eru á meðal orsaka þess hve hægt hefur gengið að koma nýframkvæmdum af stað og önnur orsök er auðvitað ónægt framboð af skynsamlegum og hagkvæmum virkjunarkostum í orkunýtingarflokki rammaáætlunar, sem er kannski eitthvað sem við förum betur yfir hér á eftir þegar ég mæli fyrir máli sem lýtur að þeirri lagaumgjörð.

Núverandi ríkisstjórn er einhuga um að bæta úr þessari stöðu en til að svo megi verða er óhjákvæmilegt að ráðast í mjög afgerandi lagabreytingar til að tryggja skilvirkari leyfisferla og styttri afgreiðslutíma á sviði umhverfis- og orkumála.

Undirbúningsvinna og kortlagning vegna einföldunar á leyfisferlum, m.a. ákveðnar breytingar sem koma í mjög rökréttu framhaldi af sameiningu Orkustofnunar og hluta Umhverfisstofnunar, hófst í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu í febrúar 2024, en löggjafarvinnan hvað þetta varðar var að einhverju leyti frekar skammt á veg komin þegar ný ríkisstjórn tók við í desember. Mitt mat var það, þegar ég fór yfir það sem beið okkar, að það þyrfti að ganga talsvert lengra í einföldun og samþættingu leyfisferla og þetta frumvarp tekur mið af þeirri afstöðu og felur í sér almennari heimildir Umhverfis- og orkustofnunar til sameiningar leyfa heldur en fyrri frumvarpsdrög gerðu ráð fyrir. Auk þess ætlum við að falla frá hugmyndum um að framkvæmdir í þágu orkuskipta og kolefnishlutleysis fái sérmeðferð að veittum rökstuðningi umsækjanda. Í staðinn mælum við fyrir um að verkefni sem samþykkt hafa verið í orkunýtingarflokk rammaáætlunar sæti sjálfkrafa forgangsmeðferð hjá Umhverfis- og orkustofnun. Þessa breytingu verður þá líka að skoða í samhengi við áform nýrrar ríkisstjórnar um að auka skilvirkni og festu við framkvæmd rammaáætlunar og tryggja að röðun virkjunarkosta taki mið af markmiðum stjórnvalda um aukna orkuöflun, sem er eitthvað sem við ætlum að binda sérstaklega í lög með breytingum á raforkulögum eins og ég fór yfir hér áðan. Fleiri ákvæðum hefur verið bætt inn í frumvarpið í takti við áherslur nýrrar ríkisstjórnar, en almennt miðar frumvarpið að því, sem áður var líka stefnt að, að samþætta og samræma leyfisveitingar, kæruleiðir og tengdar ákvarðanir til að stytta heildartíma ferla til að tryggja að regluverkið allt saman styðji betur við skilvirka, vandaða, aðgengilega og gagnsæja stjórnsýslu. Þarna erum við að stíga mjög stór skref til innleiðingar þeirrar hugmyndafræði sem lengi hefur verið kallað eftir að verði innleidd, m.a. af hálfu Landsvirkjunar, um einn afgreiðslustað. Þá erum við að tala um einn afgreiðslustað í stjórnsýslunni gagnvart umsækjanda eða leyfishafa, að stjórnsýslan verði svona notendamiðuð frekar en stofnanamiðuð.

Við leggjum hér til breytingar á ýmsum lögum sem varða málsmeðferð og leyfisveitingar hjá Umhverfis- og orkustofnun. Það eru breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, um að heimila ótímabundna leyfisveitingu og að heimild til að mæla fyrir um skráningarskyldu í stað starfsleyfisskyldu nái til fleiri tegunda starfsemi.

Við mælum fyrir um að heimilt verði að sameina tilteknar heimildir samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði og lögum um náttúruvernd, með leyfisveitingu Umhverfis- og orkustofnunar, hún taki þá við bindandi umsögn frá Fiskistofu. Þetta er mikilvæg breyting sem þýðir þá að virkjunaraðilinn mun hér eftir ekki þurfa að leita til Fiskistofu, það gerist bara sjálfkrafa í ferlinu hjá Umhverfis- og orkustofnun.

Svo eru þarna breytingar sem varða samspil laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana og laga um stjórn vatnamála. Það eru lagðar til ýmsar breytingar á viðaukum laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana í þágu einföldunar og skýrleika og til samræmis við EES-rétt.

Svo eru þarna breytingar á lögum um Umhverfis- og orkustofnun, sem ég hef aðeins tæpt á, sem eru einmitt til að tryggja þessa samræmdu málsmeðferð. Þar erum við m.a. að tala um heimild stofnunarinnar til að sameina leyfisveitingu og heimildir, ekki bara sem heyra undir stofnunina sjálfa heldur líka heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda — þetta er meiri háttar breyting — enda sé heimild fyrir því í viðkomandi sérlögum eins og við erum að setja inn þegar kemur að lögum um lax- og silungsveiði. Þetta er þá eitthvað sem við höldum áfram með strax í haust.

Loks er lagt til að Umhverfis- og orkustofnun tryggi forgang á afgreiðslu umsókna um virkjunarleyfi vegna virkjunarkosta í orkunýtingarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar. Þetta er þá mjög einfalt mat sem fer fram. Þetta skiptir máli. Við sáum bara hvernig Hvammsvirkjun tafðist og þar hefur því nú verið hreyft að málið hafi svolítið endað neðarlega í bunkanum og að á grundvelli jafnræðisreglu hafi stofnunin ekki talið sér heimilt að afgreiða það á undan öðrum verkefnum. En þetta kallast líka á við ákallið um að ákveðnar framkvæmdir séu skilgreindar svolítið þjóðhagslega mikilvægar, að þegar verkefni hafa ratað í orkunýtingarflokk rammaáætlunar með ákvörðun Alþingis þá eigi þau verkefni að ganga fyrir í stjórnsýslu orkumála. Þetta er mikilvægt.

Svo eru þarna líka breytingar á fleiri lagabálkum, á orkulögum, lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda og lögum um umhverfisábyrgð.

Ég er sannfærður um að þetta sé mál sem hafi almennt jákvæð áhrif á samfélagið. Við erum að draga úr reglubyrði, stjórnsýslubyrði, við erum að stuðla að skilvirkari og sterkari stjórnsýslu og það felur í sér einföldun laga og stjórnsýslu og stuðlar þannig að auknum fyrirsjáanleika fyrir atvinnulífið í landinu og er til þess fallið að auðvelda aðgang nýrra aðila á markað og hafa þannig jákvæð áhrif á samkeppni.

Virðulegi forseti. Þetta er auðvitað heillangt mál og efnisatriðin eru mörg og þetta er eitthvað sem þarf að fara mjög gaumgæfilega yfir í þinginu. En ég hef rakið hérna meginefni frumvarpsins og kannski það sem þar sem mér finnst stærst og mikilvægast í því.

Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.