breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Frú forseti. Fyrst ber að þakka hæstv. ráðherra fyrir góða yfirferð yfir málið. Ég vil vekja athygli á nokkrum atriðum í þessu sem þarf að skoða nánar. Það eru einkum atriði sem snúa að einföldun, þ.e. hvort þessi einföldun geti að einhverju leyti leitt til fækkunar starfa og að afgjöld af þessum mikilvægu fyrirtækjum geti flust á höfuðborgarsvæðið í stað þess að þeim sé þá sinnt í hinum dreifðu byggðum. Ég vek athygli á því að það á t.d. að færa leyfisveitingu frá heilbrigðisnefndum sveitarfélaga til miðlægrar stofnunar í Reykjavík og ekki nóg með að flytja eigi það sem snýr að orkuframleiðslunni einni, sem er yfirleitt nokkuð einfalt þegar virkjanirnar eru farnar af stað, heldur allt sem fylgir. Þetta á jafnvel einnig við um fiskeldisfyrirtækin. Þarna getur verið starfsemi á borð við bensínstöðvar, þvottahús, starfsmannabúðir og annað. Þegar allt er til talið þarf mögulega að trilla sérfræðingum á öllum þessum sviðum út og suður um landið til að fylgja eftir þessari einföldun.
Ég vil þess vegna bara vekja athygli á því að þegar farið er að skoða málið nánar er málsmeðferðartími ekki endilega meiri og þannig að menn nái fram markmiðum frumvarpsins um styttingu málsmeðferðartíma og einföldun og sparnað eins og fyrst er á litið.
Margt er jákvætt í þessu frumvarpi og ég vil nefna í lokin að það á einfaldlega að fella tré og það er eitthvað sem við teljum vera mikilvægt nú árið 2025 til þess að ná fram öryggi í flugi. Nú á í þessu frumvarpi að tryggja raforkuöryggi með því að auðvelda það að fella tré. Þannig að það er margt jákvætt í þessu.