breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Frú forseti. Ég þakka fyrir góð svör frá hæstv. ráðherra. Það er mjög mikilvægt að hér komi fram þessi góði hugur hvað varðar það að tryggja starf og umfang hliðarstarfsemi vítt og breitt um landið. Það hefur komið fram að mikilvægur þáttur í því að tryggja jákvæða ímynd er, hvað eigum við að segja, að afgjöld af svona fyrirtækjum renni inn í nærumhverfið. Það skiptir verulega miklu máli til þess að tryggja jákvæðni hjá íbúum. Það er t.d. bara staðreynd að íbúar á Norðurlandi vestra eru mjög jákvæðir í garð þeirra virkjana sem þar eru, t.d. Blönduvirkjunar, og það er mikilvægt að tryggja að svo verði áfram. Þess vegna skora ég hér á hæstv. ráðherra að horfa til þess að tryggja að náttúrustofur og stofnanir úti á landsbyggðinni fái verkefni tengd þessari mikilvægu starfsemi þannig að íbúarnir, nærumhverfið, njóti þeirra virkjana sem er að finna í dreifbýlinu.