156. löggjafarþing — 23. fundur, 1. apr. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
265. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir þessa ábendingu sína. Ég held að þetta sé bara mikilvæg brýning, bæði fyrir mig og mitt ráðuneyti þegar kemur að frekari vinnu í þessum málum og fyrir hv. umhverfis- og samgöngunefnd þegar farið er yfir þetta frumvarp. Það er alls ekki, og ég tel að þess sé gætt mjög vel í útfærslunni sem þarna er lögð til, meiningin að störfum fækki í hinum dreifðari byggðum þegar kemur að nauðsynlegu eftirliti.