156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:08]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er auðvitað hárrétt hjá hv. þingmanni að þetta frumvarp hefur tekið töluverðum breytingum frá því að frumvarp sem laut að sumu leyti að svipuðum atriðum kom inn í samráðsgátt fyrir nokkrum mánuðum. Ein stærsta breytingin sem hefur verið gerð lýtur að því sem ég fór yfir hérna áðan, að í staðinn fyrir að mæla fyrir um einhvers konar sérmeðferð verkefna sem tengjast orkuskiptum og kolefnishlutleysi þá erum við í rauninni með einfaldara ákvæði um forgangsmeðferð þeirra kosta sem eru í orkunýtingarflokki rammaáætlunar. Þetta er síður matskennt ákvæði og ég hygg að einhverjir umsagnaraðilar hafi einmitt staldrað við þetta ákvæði eins og það leit áður út. Ég held að það hefði að einhverju leyti verið illframkvæmanlegt.

Hvað var það í athugasemdunum sem skilaði sér ekki inn í frumvarpið? Ég man ekki eftir neinum sérstökum atriðum í fljótu bragði nema kannski atriðum sem varða frekar einhvers konar reglugerðarbreytingar. Það var t.d. bent á atriði sem vantar upp á að séu leiðrétt í reglugerðum sem hefur verið breytt í lögum á undanförnum árum, sem þarf að uppfæra reglugerðir í samræmi við. Svo kunna að vera einhver atriði sem t.d. hafa með rammaáætlunarlagabálkinn að gera. Við erum ekki að hreyfa við honum í þessu frumvarpi. Það er m.a. í öðru frumvarpi sem ég vona að við ræðum hér á eftir.