156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:10]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég verð að viðurkenna að mér þótti þetta ákvæði sem hæstv. ráðherra, held ég að ég geti sagt, skynsamlega ákvað að snúa varðandi þessa áætluðu sérmeðferð varðandi orkuskipti og kolefnishlutleysi, að færa það yfir til þess að líta til þess að sérmeðferðin lúti að verkefnum í nýtingarflokki rammaáætlunar, ég held að það sé til mikilla bóta.

Mig langar til að biðja hæstv. ráðherra í seinna svari sínu að teikna kannski upp með aðeins fyllri hætti fyrir okkur hér í þingsalnum tengingu þeirra mála sem hér eru undir við hin málin sem hæstv. ráðherra mælir fyrir á þessu þingi, er þegar búin að mæla fyrir, til að auðvelda okkur þingmönnum að glöggva okkur á tengingu þar á milli og kannski sérstaklega hvað það er sem við þurfum ekki að setja orku í að líta til við meðferð þessa máls í ljósi þess að á því verði tekið annars staðar.