156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:11]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það sé einmitt mjög gagnlegt að nálgast þessa umræðu svona. Ég kannski gleymdi einu svolítið mikilvægu atriði sem er það að Umhverfis- og orkustofnun geti sameinað leyfisveitingu og heimildir og þá líka þær sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda heldur en stofnunarinnar sjálfrar í dag. Þetta er mjög róttæk breyting sem skiptir miklu máli. Sérstaklega þegar við förum að fara inn í sérlög sem hafa með aðrar stofnanir að gera, eins og við erum að gera hér með Fiskistofu, þá er þetta risaskref í þá átt að gera Umhverfis- og orkustofnun að einum afgreiðslustað — nú hef ég 20 sekúndur.

Ef ég reyni að setja þetta í samhengi þá erum við með breytingar á lagaumgjörð rammaáætlunar sem í grunninn byggir á skýrslu starfshóps sem forveri minn skipaði. Þar erum við að taka það í þeirri vinnu sem ég taldi gagnlegast og raunverulega til þess fallið að styrkja umgjörðina, auka festu í ferlinu, við erum að taka það strax inn í þingið en um leið erum við að koma með inn í samráðsgátt frumvarp (Forseti hringir.) sem bindur þetta svolítið allt saman. Þar erum við að snerta á raforkulögum (Forseti hringir.) með því að lögfesta skyldu til að leggja fram töluleg markmið um orkustefnu og binda þá stefnu við ferli rammaáætlunar og röðun virkjunarkosta. (Forseti hringir.) Þannig að þarna er svona heildarsamfella. En þetta frumvarp lýtur að almenna leyfisveitingaferlinu, því sem tekur við eftir rammaáætlun.

(Forseti (EÁs): Ítrekað er að ræðutími er ein mínúta í síðari umferð.)