breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja þetta mál fram og þekki ég það nú nokkuð því að það var sett í samráðsgátt 22. nóvember. Það er hins vegar ekki alveg nákvæmt kannski í greinargerðinni að vinna við þetta hafi hafist í febrúar 2024 vegna þess að það var unnið að þessu allt kjörtímabilið og kom náttúrlega fram í einföldun, t.d. í stækkunarfrumvarpinu sem er náttúrlega mesta einföldun sem hefur verið gerð. Sameining stofnana, sem hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn nýtur góðs af, er náttúrlega grunnurinn að því að þú getir einfaldað ferla. Hins vegar komu þessir aðilar að vegna þess að það átti að vera erfitt að fá beinar hugmyndir innan úr kerfinu og frá hagsmunaaðilum um það hvernig ætti að gera þessa hluti. Það sýnir ágætlega hvað það er flókið að einfalda að ég held að það séu hérna tíu lög sem þarf að breyta til að ná þessu með einni stofnun þar sem menn geta farið með þetta allt saman í gegn. Eins og ég skil málið þá er það eins og var lagt upp með, að þetta er fyrsta skrefið af mörgum til að einfalda.
Mér brá hins vegar nokkuð þegar ég hlustaði hér á orðaskipti stjórnarliða. Samstaðan var kannski ekki alveg jafn mikil eins og maður var farinn að heyra í upphafi í umræðunni. Er það virkilega svo, virðulegi forseti, að það megi ekki fækka starfsmönnum við leyfisveitingar? Hæstv. ráðherra talaði með þeim hætti í svörum sínum við spurningum hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar. Auðvitað gengur þetta út á að fækka starfsmönnum við leyfisveitingar. Það er nú einn parturinn af þessu. Til þess er leikurinn gerður. En er hæstv. ráðherra að segja að það megi alls ekki gera?
Svo vil ég líka spyrja hæstv. ráðherra — af því að menn keyrðu mjög hratt í gegn forsetaúrskurðinn hér. Ég hefði talið skynsamlegra að ræða hann. Eitt af því sem ég fann, og það er alveg rétt að það voru mismunandi sjónarmið í ríkisstjórninni síðustu, er að það var einstaklega óheppilegt (Forseti hringir.) að Skipulagsstofnun heyrði ekki undir ráðuneyti hæstv. ráðherra. Er hæstv. ráðherra sammála því?