breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Ég er auðvitað alltaf tilbúinn að taka að mér fleiri málaflokka og fleiri stofnanir og fagna því að hv. þingmaður styðji mig í því. Hv. þingmaður vék sérstaklega að fækkun starfsmanna í leyfisveitingum. Ég held að fækkun þeirra starfsmanna sem fara með leyfisveitingar yrði ekki endilega til þess fallin að hraða leyfisferlunum því að þeir eru ekkert voðalega margir í dag. Það sem kom fram í orðaskiptum mínum og hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar var aðallega það hvort það væri með einhverjum hætti stefnt að því samkvæmt þessum lögum að flytja störf af landsbyggðinni og til Reykjavíkur. Ég ætla bara að vera algerlega ærlegur með það að það er ekki sérstaklega á dagskrá hjá þessari ríkisstjórn heldur þvert á móti. Það er auðvitað þannig að það er bara eðlilegt að velta upp ýmsum þáttum í þessum stóru frumvörpum sem eru að koma hér inn í þingið. Það breytir ekki því að það er talsverð samstaða um þetta mál og það hefur verið afgreitt út úr öllum þremur þingflokkum.