156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:16]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Bara svo að það sé sagt er ég í fullri alvöru að tala um Skipulagsstofnun. Það er ekki eitthvert skjallbandalag okkar vegna þess að ég er ánægður með að hæstv. ráðherra sé að koma með frumvörp sem ég undirbjó og skrifaði og ætli að halda áfram á sömu braut. Það er ekki þess vegna. Það er bara mjög vont að Skipulagsstofnun heyri ekki undir þetta ráðuneyti ef við ætlum að einfalda … (Gripið fram í.)— nákvæmlega. Það liggur alveg fyrir og ríkisstjórnin sprakk og kannski fyrst og fremst út af orkumálunum. Það var ekki samstaða þar eins og hæstv. ráðherra er margoft að segja. En það hefði verið skynsamlegra að vanda betur forsetaúrskurðinn því að Skipulagsstofnun á heima nákvæmlega þarna ef menn ætla að einfalda. Í rauninni hefði partur af henni í það minnsta átt að sameinast Umhverfis- og orkustofnun.

En bara út af fækkun starfsmanna — eitt dæmi sem kom fram; fella tré. Ef þetta frumvarp nær fram að ganga þá er breytt þeirri reglu að nú þarf að fá leyfi (Forseti hringir.) Umhverfis- og orkustofnunar ef tré er að vaxa upp í háspennumastur. (Forseti hringir.) Það þarf að breyta lögunum til að svo megi verða. Þannig að þar fækkar nú starfsmönnum. Svo ertu með gervigreind. Ég held að uppleggið hjá okkur með sameiningum hafi verið (Forseti hringir.) einföldun en líka hagræði, sem þýðir að við þurfum þá færra fólk til að sinna sömu störfum.