156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:18]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé mikilvægt að horfa til þess ef við ætlum að fara að ræða hér um forsetaúrskurðinn um skiptingu stjórnarmálefna að auðvitað hníga líka mjög sterk rök að því að húsnæðismálin og skipulagsmálin séu á einum og sama staðnum. Það breytir ekki því að til þess að fara í einföldun á sviði orkumála þá skipta skipulagsmál miklu máli, m.a. í samhengi við raflínur. Hv. þingmaður nefndi það að fyrri ríkisstjórn hefði nú einmitt sprungið og ég held að þar komist hann svolítið að kjarna málsins. Það sem var vandinn hjá fyrri ríkisstjórn var að ráðuneytin spiluðu ekki saman. Ráðherrar voru einhvern veginn að því er virðist í stríði hver við annan; í stríði um peninga, í stríði um hitt og þetta. Ríkisstjórnin sprakk til allrar hamingju á endanum en stjórnkerfið er enn þá að jafna sig á þessu. Við erum að stíga mikilvæg skref til einföldunar og ég hef engar áhyggjur af því að samráðherrar mínir, m.a. sá ráðherra sem fer með skipulagsmál, verði ekki samvinnuþýðir í því verkefni, því að við erum eitt lið, við erum ein samstiga ríkisstjórn (Forseti hringir.) með sameiginleg pólitísk markmið sem koma fram í stuttri og snarpri stefnuyfirlýsingu og við (Forseti hringir.) vinnum samkvæmt henni, sama hver situr í hvaða ráðuneyti. Þetta gildir um skipulagsmál, um raflínumálefni, um einföldun ferla, allt saman.