156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagninguna. Aðeins út af orðaskiptum stjórnarliða hér áðan þá er það nú þannig, virðulegi forseti, að Flokkur fólksins barðist mjög gegn hagræðingu og einföldun í leyfisveitingum og eftirliti þegar kom að heilbrigðiseftirliti. Það var það sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson var að vísa í áðan, hann heldur mjög mikinn vörð um núverandi fyrirkomulag sem hefur verið gagnrýnt, ekki bara af þeim sem þurfa á þjónustunni að halda heldur ekki síður þeim sem við erum í samstarfi við á Evrópuvettvangi. Það gæti jafnvel farið svo illa að við myndum lenda í verulegum vandræðum vegna þess að það fyrirkomulag sem við erum með núna er ekki gagnsætt, það er ekki eins yfir landið. Ég vona að menn haldi áfram þeirri vegferð sem er flókin vegna þess að það þurfa ekki bara tvö ráðuneyti að koma að því heldur sömuleiðis sveitarfélögin ef menn ætla að ná árangri. Og af því að hæstv. ráðherra talar svo mikið um hvað það er góð samstaða í ríkisstjórninni þá vöktu athygli mína orðaskiptin hér rétt áðan, þ.e. hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar úr Flokki fólksins og hæstv. ráðherra, því ég gat ekki heyrt að hv. þm. Sigurjón Þórðarson væri neitt búinn að breyta um stefnu eða skoðun þegar kemur að heilbrigðiseftirlitinu. Ég held að það sé óhætt að segja að hann telji að þar hafi menn náð fullkomnun í fyrirkomulagi. Það er nokkuð merkilegt í mannheimum að menn hafi náð fullkomnun en ef ég hlusta á hv. þm. Sigurjón Þórðarson þá er hann á því.

Ég held að það skipti mjög miklu máli að menn tali íslensku, í það minnsta um það upplegg sem við vorum með, það er mjög margt sem er hér nákvæmlega eins. Það er ýmsum hlutum breytt í orðalagi og öðru slíku en markmiðið er alveg skýrt: Hafa eina stofnun þar sem öll ferlin fara í gegn. Það þarf að breyta mjög mörgum lögum til þess að svo megi verða. En auðvitað gengur þetta út á að nútímavæða þetta fyrirkomulag. Það þýðir, jafn fáránlegt og það er því það er fáránlegt, að ef tré er að vaxa upp í háspennumastur þá á bara að fella það en samkvæmt lögum núna, því ég gat ekki breytt þessu í reglugerð, þá er fyrirkomulagið þannig að menn þurfa að sækja um það til stofnunar og það getur tekið sex mánuði að fá já. Já, það má fella tré sem er að vaxa upp í háspennumastur. Hvað þýðir það að við samþykkjum þennan þátt málsins og frumvarpið hér? Það þýðir að það þarf enginn að sinna því að taka á móti erindum um að fella tré sem kemur upp í háspennumastur.

Ef þetta væri eina vitlausa fyrirkomulagið sem væri til staðar þá væri ég glaður. Svo er ekki. Það er af nógu að taka. Þegar menn lesa í gegnum þetta stutta frumvarp þá sjá menn hvað ég er að meina þegar ég segi: Það er einfalt að flækja en það er flókið að einfalda. Hér eru tíu lagabálkar undir í þessum bandormi og ef menn halda áfram, sem ég vona að þeir geri, þá er af nógu öðru að taka.

Það er mjög gott fyrir núverandi ríkisstjórn að taka við þeirri vinnu sem var búið að vinna. Það er mjög gott. Þess vegna er mestur kraftur núna þegar kemur að orkuframleiðslunni í stækkun virkjana. Af hverju? Vegna þess að við erum með mjög einfalt fyrirkomulag, miklu einfaldara en t.d. Norðmenn og við erum búin að taka það út úr rammanum og það hefur skilað mörg hundruð megavöttum. Það verður að segjast eins og er að það er þakkarvert að þáverandi stjórnarandstöðuflokkar, núverandi ríkisstjórnarflokkar, greiddu atkvæði með því frumvarpi mínu.

Það er alvörumál ef menn ætla sér að fækka stofnunum, einfalda ferla, og þá skiptir máli að sá hlutur Skipulagsstofnunar sem heyrir undir orkumál sé þar inni. Það er þess vegna sem við sátum hjá, virðulegi forseti, þegar var verið að ganga frá forsetaúrskurði af því menn keyrðu það bara í gegn án þess að skoða þá hluti. Við fundum mikið fyrir því í þessari vinnu sem var allt kjörtímabilið og skilaði miklu. Ég er mjög ánægður með að þetta frumvarp sé hér komið fram. Ég heyri það að menn fagna því hins vegar að nota ekki orkuskipti og kolefnishlutleysi og setja í stað þess það sem er í nýtingarflokki. Ég vona að það sé ekki hamlandi, að það sé ekki að þrengja, því hvað eru orkuskipti og kolefnishlutleysi? Það er bara nokkurn veginn allt. Hvað heyrir ekki undir það? Það eru hugsanlega rafmyntir, ef þú ætlar að selja orku inn í gagnaver sem er með rafmyntir. En það er mér fullkomlega að meinalausu. Þetta var bara í anda áhersla síðustu ríkisstjórnar og mér að meinalausu ef menn taka það út, ef það víkkar og gerir okkur auðveldara að koma hlutum áfram.

Það verður annað frumvarp hér sem við ræðum seinna sem snýr að breytingum á rammanum sem sömuleiðis kemur frá síðustu ríkisstjórn þannig að við getum rætt þá hluti. Mín sýn hefur alltaf verið sú að við séum með einfalt fyrirkomulag sem skili sínu hlutverki. Við skulum ekki gleyma því leyfisveitingar og eftirlit hefur í sjálfu sér gott markmið, en við erum algerlega komin út í mýri með það fyrirkomulag sem er núna, fullkomlega út í mýri. Það er rosaleg vinna að vinda ofan af því. Það á ekki að gera lítið úr því þegar hér koma ábendingar um að það væri skynsamlegt að einfalda meira af því að nú er það stefna ríkisstjórnar eins og síðustu ríkisstjórnar. Ég tók nú tíu stofnanir og sameinaði í fimm og hefði sameinað fleira ef þingið hefði ekki þvælst fyrir mér. Það myndi auðvelda alla vinnu, auðvelda að ná markmiðum þessa frumvarps, markmið þeirrar vinnu sem ég hóf og er áfram verið að vinna að, að það sé einn staður þar sem þú getur farið með ferlið í gegnum. En það er erfitt að koma því við þegar Skipulagsstofnun heyrir ekki undir þetta ráðuneyti. Skipulagsstofnun var undir þessu ráðuneyti en guð einn veit af hverju hún var færð, ég kann ekki þá sögu, veit ekki af hverju það var gert. En það var ekki skynsamlegt.

Við eigum líka að segja eins og er ef við erum að þessu í fullri alvöru og það er það sem mér finnst vera skrýtið með þessa ríkisstjórn. Forystumenn hennar segja oft hluti sem hljóma vel í mínum eyrum. Það er aðhald, það er hagræðing og það eina sem þau eru að framkvæma í rauninni er það sem var lagt upp með. Þau fengu ábendingar frá almenningi, fullt af mjög góðum ábendingum. Mér fannst þetta mjög góð hugmynd að fá hugmyndir frá almenningi. En þrátt fyrir að kynningin væri einstaklega góð þar sem forystumenn ríkisstjórnarinnar voru að segja frá því að þetta væru tillögur ríkisstjórnarinnar, komnar frá almenningi, þá eftir einn, tvo daga könnuðust þau ekkert við þetta. Ef einhver umræða kom um einhverjar tillögur þá gat maður algjörlega bókað það að þá kæmi ráðherra viðkomandi málaflokks og kannaðist ekkert við málið og sagði að þetta væri bara tillaga nefndar úti í bæ og yrði aldrei framkvæmd. Meira að segja aðaltillagan sem er langstærsta tillagan sem er að breyta lögum um opinbera starfsmenn. Ríkisendurskoðun er búin að skrifa tvær skýrslur um þessi mál og ég held að Ríkisendurskoðun nenni ekki að skrifa fleiri, þær eru nákvæmlega eins, sem segja að við höfum algjörlega þá sérstöðu að þegar ríkið fór að stækka í þeim löndum sem við berum okkur saman við þá fóru allir þá leið, allir, að gera vinnumarkaðinn hjá hinu opinbera líkari því sem gerist á almenna markaðnum. Allar þjóðir nema ein þjóð og það vorum við Íslendingar. Bara til að setja þetta í samhengi þá þurfa menn, til að segja upp opinberum starfsmanni, embættismanni, að fara í gegnum áminningarferli. Menn þurfa að fá tvær áminningar til að hægt sé að segja þeim upp. Gefum okkur það að hv. þm. Ólafur Adolfsson sé embættismaður, (Gripið fram í.) fyrirgefið, hv. þm. Bergþór Ólason, og hann kæmi bara undir áhrifum áfengis í vinnuna, sem myndi aldrei gerast. Hvað myndi það þýða? Það þýðir að hann fær áminningu. Síðan gerir hann eitthvað allt annað af sér, hann leitar á hv. þm. Ólaf Adolfsson. Ég held að það sé miklu betra að snúa þessu við, það sé Ólafur Adolfsson sem geri það, en látum það liggja á milli hluta. Hann fær aðra áminningu. Er honum sagt upp? Nei, vegna þess að þetta er sitthvor áminningin, sitthvort málið. Þetta er nokkuð sem þekkist hvergi nema hér. En það á alls ekki að taka þá tillögu og á ekkert að gera með hana, það er búið að blása hana út af borðinu.

Síðan kemur hér athugasemd frá hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni frá Flokki fólksins sem hefur áhyggjur af því að það gæti skeð að starfsmönnunum myndi eitthvað fækka ef hér væru hreinsaðar út fullt af greinum úr lögum til að einfalda. Þá kemur hæstv. ráðherra og segir: Hafðu engar áhyggjur, starfsmönnum er ekkert að fækka. Hvað á starfsmaðurinn að gera sem sér um að fara yfir trén sem fara upp í háspennumöstur? Það þarf að finna eitthvað nýtt fyrir hann ef það má ekki fækka starfsmönnum.

Virðulegur forseti. Ég hef áhyggjur af þessu en ég er mjög ánægður með að sjá þetta mál. Þótt það láti ekki mikið yfir sér þá liggur gríðarlega mikil vinna á bak við það, alveg gríðarlega mikil vinna á bak við þetta. Það er nefnilega þannig að þegar þú kemur í ráðuneyti og segir: Nú vil ég að þetta sé einfaldað, komið með tillögu um einföldun. Þá bara fallast fólki hendur. Í þessu tilfelli er um að ræða breytingu á orkulögum, breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, breytingu á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, breytingu á raforkulögum, breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, breytingu á lögum um umhverfisábyrgð, breytingu á lögum um náttúruvernd, breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, breytingu á lögum um Umhverfis- og orkustofnun, tíu lög sem sýnir hvaða kóngulóarvef við erum búin að búa til þegar kemur að þessum leyfisveitingum.

Virðulegur forseti. Ekki ætla ég að kvarta undan því að hér sé verið að koma með mál sem við undirbjuggum og sem var tilbúið þegar hæstv. ríkisstjórn tók við völdum, út af undirbúningi sem við vorum með á síðasta kjörtímabili og var á þingmálaskrá. Ég bara fagna því einlæglega að þetta mál sé komið fram og við munum einlæglega að gera allt hvað við getum til þess að keyra þessi mál í gegn og fara vel yfir þau. Ef ábendingar koma eins og hv. þm. Bergþór Ólason var að vísa til sem gera það að verkum að það er hægt að ganga lengra þá styðjum við það að sjálfsögðu. Ég treysti því að þetta sé bara byrjunin því það var alveg ljóst í okkar huga að þessi frumvarpsdrög sem voru sett í samráðsgátt voru bara fyrsta skrefið af mörgum til að ná fram þeim markmiðum sem við viljum ná. Við erum bara í þeirri stöðu, Íslendingar, eins og margar Evrópuþjóðir, það er aðallega Evrópa, að við erum búin að koma okkur í slæma stöðu. Við erum búin að skerða samkeppnishæfni okkar. Við erum þar af leiðandi búin að draga úr möguleikum okkar til verðmætasköpunar vegna þess að við erum búin að búa til, þetta er manngert, fyrirkomulag í mannheimum sem þjónar ekki sínum markmiðum. Það er engum til gagns. Það er engum til gagns að hafa reglur sem engu máli skipta en kosta bara peninga fyrir atvinnulífið og það dregur þar af leiðandi úr verðmætasköpun og kallar á vinnu fyrir gott fólk hjá hinu opinbera sem sinnir þessum störfum. Það er auðvitað hægt að bjóða líka út eftirlit, sem þarf ekki að fylgja eftir. Það er mjög skrýtið að ef þú ætlar að reisa — það er nú annað mál sem ég vona að sé enn þá inni, það átti að taka það út — Kárahnjúkavirkjun, sem hefur verið gert, sem er risavirkjun, alla vega á íslenskan mælikvarða, langstærsta virkjun sem hefur verið sett á laggirnar, þá þarf að fara í gegnum heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, heilbrigðisnefnd sveitarfélaga eins og það vantaði eitthvað upp á þá ferla til að fá leyfi til að skoða. Nei, nei, það þarf að fara í gegnum heilbrigðisnefndina, Kárahnjúkavirkjun. Það er nú eitt af því sem ég vona að sé búið að taka út. Þetta sýnir bara fáránleikann. Og þessi upptalning mín, þessi dæmi hér hjá mér, er ekki tæmandi.

Ég vona, virðulegi forseti, að það sé samstaða um þessi mál hjá ríkisstjórninni, ekki bara í orði heldur líka á borði, því þessi orðaskipti ollu mér áhyggjum. Ekki gleyma því að á síðasta kjörtímabili vorum við að vinna í því að reyna að einfalda mál þegar kemur að heilbrigðiseftirlitinu og þá fengum við nákvæmlega þessi sjónarmið frá þáverandi stjórnarandstöðuflokkum sem núna eru í stjórn. Ég vona að það sé búið að breyta stefnu fleiri flokka heldur en bara Samfylkingarinnar í þessum málaflokki.