breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir framsöguna vegna þessa máls. Aðeins um breiðu myndina í byrjun. Þetta er eins konar bandormur sem við erum að eiga við hérna, með breytingu á einum tíu lögum sem hafa verið þulin upp á fyrri stigum og ég ætla ekki að endurtaka. Þau heyra undir nokkra ráðherra og enn þá fleiri stofnanir þannig að það er ljóst að flækjustigið sem hér er verið að reyna að vinda ofan af og einfalda að nokkru marki er þeirrar gerðar að það blasir við og verður mönnum ljóst auðvitað þegar reynt er að flysja laukinn hvers vegna svona hægt hefur gengið að komast í gegnum þennan frumskóg sem þetta regluverk er.
Ég held að það hljóti að vera öllum ljóst að þegar þetta regluverk er formað í upphafi þá getur það ekki hafa verið meining þeirra sem það gerðu, sem sátu hér í þessum sal, að forma regluverkið þannig að menn kæmust ekki áfram með virkjunarframkvæmdir, menn gætu ekki flutt rafmagn á milli svæða vegna þess hversu torvelt það er að leggja nýjar línur og áfram mætti telja. Það getur ekki hafa verið markmiðið. Einhvern veginn hefur kerfið undið upp á sig í gegnum árin og áratugina í sjálfu sér í sumum tilvikum innan þessa regluverks alls. Það er beinlínis skylda okkar að vinda ofan af þeim óþarfaflækjum sem hér hefur verið komið á og verið formaðar í gegnum árin. Það er hægt að gera það án þess að það sé að neinu marki verið að hverfa frá því að líta til náttúrunnar og verndar hennar með forsvaranlegum hætti. Það er nefnilega algert lykilatriði, sem ég held að allir þingmenn hér inni og landsmenn flestir vilji hafa í huga, að ganga vel um náttúruna. En það þarf auðvitað að horfa heildstætt á mat þeirra verkefna sem ráðast á í. Þegar talað er um að leggja heildstætt mat þá hefur það, svo ég gangist nú við því, pirrað mig alveg óskaplega hversu léttilega hefur verið farið með hið samfélagslega mat sem framkvæmt er og uppálagt í reglurammanum í vinnslu rammaáætlunar hverju sinni. Allt hefur þetta borið að þeim brunni að tefja, þvælast fyrir. Það hefur verið haft í flimtingum að rammaáætlun hafi á endanum virkað, hún hafi virkað til að stoppa vatnsafls- og jarðvarmaverkefni. Ef það var markmiðið þá fóru þeir sem sáu það fyrir sér mjög dult með það á sínum tíma þegar regluverkið var formað. Það að regluverkinu sé beitt með þeim hætti sem verið hefur, til að mynda með tímasetningar kæruheimilda, hvenær aðilar, einstaklingar, hagsmunasamtök, fyrirtæki, hagaðilar allir, geta stigið inn með kærur, er eitthvað sem hefur blasað við lengi að yrði að laga og færa til þess vegar að við komumst áfram með verkefni sem undir þetta regluverk heyra. Ég bara ítreka og ég fullyrði að það var alla vega mjög vel falið hjá þeim fáu sem hugsuðu það þannig. En heilt yfir þá getur það ekki hafa verið markmið þeirra sem formuðu þetta regluverk í upphafi og þegar fyrstu skrefin voru tekin í þessum efnum að koma málum fyrir eins og þau hafa þróast.
Það hefur verið komið inn á það í nokkrum ræðum, með vísan í umsagnir í samráðsgátt, að hagaðilar líti á þetta sem fyrsta skref í vegferð sem gengur út á að einfalda regluverk. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við nálgumst málið með þeim hætti að þetta sé fyrsta skref og mjög mikilvægt. Ég lýsti því í andsvari rétt áðan að ég hef ákveðnar áhyggjur af því að regluverkið, þ.e. lagabálkarnir tíu sem hér er stigið inn í, verði mjög móttækilegt fyrir því af síðari tíma stjórnvöldum mögulega að hleypa viðbótarflækjum inn aftur í stað þeirra sem nú er undið ofan af. Við þingmenn þurfum að vera sérstaklega meðvitaðir um að passa upp á þann árangur sem ég vona að náist með meðferð þessa máls og vonandi samþykkt þess fyrir þinglok.
Menn hafa verið að kýta dálítið um það hver eigi krógann hér í þessari umræðu og það verður auðvitað að halda því til haga sem vel er gert. Þetta verkefni fór af stað á síðasta kjörtímabili og var kannski helst fórnarlamb þeirrar ríkisstjórnar sem ýtti því úr vör. Eins og við þekkjum þá gekk ekki allt svona hönduglega í meðferð góðra mála í því samstarfi. En ég held að það sé ánægjulegt að núverandi hæstv. ráðherra hafi tekið það mál, unnið áfram og alla vega hef ég í fljótu bragði ekki séð efnisatriði færð til verri vegar enn sem komið er þannig að ég held að málið eins og það er vaxið sé til mikilla bóta og bara prýðilegt, held ég að það sé hægt að segja, í flesta staði. En það á auðvitað eftir að koma í ljós í vinnu nefndarinnar þegar umsagnir hagaðila berast aftur því það hafa orðið töluverðar breytingar á málinu frá því að það var lagt fram í samráðsgátt.
Hér hefur komið upp umræða um hvaða stofnanir heyra undir hvaða ráðherra. Þetta tosast nú dálítið á, málefni er varða orkuvinnslu, framleiðslu og flutning annars vegar og síðan mannvirkjamál hins vegar er varða til að mynda húsnæðismarkaðinn. Í báðum tilvikum telja þeir sem á þeim markaði starfa skynsamlegt að fleiri þættir en færri heyri undir sama ráðuneytið. Ég held að þegar kemur að næstu uppstokkun, ef svo má segja, í þeim efnum þá sé það sjónarmið sem þarf að koma til skoðunar, hvort fleiri þættir verði færðir undir sama ráðherra sem eru undir tveimur í dag og þetta allt saman varða. Það þarf að hafa þessi sjónarmið er varða mannvirkjageirann annars vegar og orkuöflun hins vegar í huga.
Það eru nokkur atriði sem mig langar að nefna. Í fyrsta lagi, á þeim grunni sem ég nefndi hér áðan, að við lítum á þetta sem fyrsta skref í þessu einföldunarferli eða eins og Samtök iðnaðarins kalla það í umsögn sinni sem var send inn 20. desember 2024, með leyfi forseta:
„Almennt styðja SI framkomnar tillögur sem eitt skref í þeirri vegferð að koma á skilvirkari leyfisveitingum í umhverfis- og orkumálum …“
Það eru fleiri umsagnir á sömu nótum. Í umsögn Viðskiptaráðs segir, með leyfi forseta:
„Frumvarpið er aðeins fyrsti áfangi nauðsynlegra lagabreytinga til einföldunar- og samræmingar á leyfisveitingaferlum.“
Ég vil hvetja hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að einmitt fiska eftir þessum sjónarmiðum. Eru skref sem er skynsamlegt að við tökum á meðan lagabálkarnir eru opnir, ef svo má segja? Er skynsamlegt fyrir okkur að taka fleiri skref heldur en þessar breytingar á þessum tíu lagabálkum sem hér eru undir og e.t.v. fá að bæta við einstökum breytingum innan hvers og eins þeirra? Mér er nú til efs að það sé ástæða til að fjölga þeim lagabálkum sem gerðar eru breytingar á í þessu máli, en sjáum til.
En út frá því að við komumst áfram með orkuöflun, rafmagnsframleiðslu hér heima, sem stuðlar í eðli sínu að orkuskiptum, þá var í upphaflegu uppleggi sem fór inn í samráðsgátt talað um það, eins og segir hér í umsögn Viðskiptaráðs, með leyfi forseta:
„Ráðið telur almenna tilvísun til orkuskipta og kolefnishlutleysis ekki nægilega skýra til að uppfylla skilyrði til að víkja frá jafnræðisreglu stjórnarskrár auk þess sem nánast undantekningalaust er um endurnýjanlega orku að ræða sem í eðli sínu stuðlar að orkuskiptum.“
Þetta er hárréttur punktur hjá Viðskiptaráði. Meira og minna og næstum því öll orkutengd verkefni á Íslandi eru græn, umhverfisvæn og stuðla í eðli sínu að svokölluðum orkuskiptum. Það bara blasir við. Fyrir þá sem leggja ofuráherslu á akkúrat þann þátt, að við komumst hér áfram í orkuskiptum og hækkum hlutfall endurnýjanlegrar orku, stenst það enga skynsemisskoðun að menn leggi áherslu á annað en að auka hér orkuframleiðslu, græna orkuframleiðslu í landinu, með áherslu á rafmagnið, myndi ég ætla. Þetta hafa verið undarlegar skylmingar árum saman þar sem kannski kemur af og til í ljós, svona flýtur upp, hver raunveruleg afstaða þeirra er sem harðast berjast gegn orkuframleiðslunni; það er bara andstaða við orkuframleiðslu. Svo er bara settur mismunandi hattur á andstöðuna hverju sinni, hver sem hann kann að vera. Ég held að það að nálgast það eins og hægt er í þessari atrennu, með leyfi forseta, ég reyni að þýða þetta, að koma upp fyrirkomulagi sem á ensku yrði væntanlega kallað einhvers lags „one stop shop“ — ég held að það sé mikið til þess vinnandi þó að skrefin þurfi að vera fleiri í þeim efnum til að ná þeim áhrifum raunverulega fram. Hluti af því yrði væntanlega það sem hæstv. núverandi og fyrrverandi orkumálaráðherrar ræddu hér áðan varðandi staðsetningu Skipulagsstofnunar innan forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna.
Virðulegur forseti. Ég ætla að láta þetta duga hér við þessa 1. umræðu málsins. Ég vona að hv. umhverfis- og samgöngunefnd vinnist málið vel og ítreka að ég hvet nefndarmenn til að hafa sérstaklega augun opin fyrir því ef tækifæri eru til að bæta inn skrefum sem yrðu til gagns í þessari mikilvægu vegferð, að einfalda regluverk og allt saman í kringum orkuöflunarverkefni.