156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:59]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir andsvarið. Ég held að tilefni og mikilvægi þessara reglubreytinga er varða m.a. breytingu á lögum um umhverfisáhrif og alla þá bálka sem hv. þingmaður taldi upp í andsvari sínu sé auðvitað, eins og er skrifað út hérna, einföldun til þess að menn komist áfram með þau verkefni sem undir eru. Ég er hrifinn af þeirri nálgun sem hér er teiknuð upp, að við byrjum a.m.k. á málum sem eru í nýtingarflokki rammaáætlunar, þau hafi forgang. Ég hef nú sjálfur talað fyrir því að við ættum hreinlega að fara leið sérlaga til að koma þeim verkefnum áfram. Ég treysti mér nú illa á þeirri mínútu sem ég á eftir hér, en kannski tvær á eftir, í djúpa greiningu á þessu en tilefnið er flækjustigið sem blasir við öllum að hefur valdið okkur ómælanlegum, held ég að sé næstum því hægt að segja, skaða á undanförnum árum og jafnvel áratugum. Hins vegar hverfist mikilvægið þar að lútandi auðvitað um það að ef við gerum þetta ekki verðum við föst áfram á þeim stað í meginatriðum sem við höfum verið núna árum saman.

Varðandi EES-reglurnar þá skal ég reyna að koma með betra og fyllra svar í seinna svari en ég verð að gangast við því að EES-regluhlutann hef ég ekki skoðað á dýptina. Eins og segir hérna er markmiðið einnig aukin samræming við EES-rétt. Þá hringir það bjöllum gullhúðunar og þar fram eftir götunum. En ég bara hef ekki skoðað það atriði sérstaklega.