breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála frá hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Ástæðan fyrir að við erum að ræða þetta hér í dag er í sjálfu sér kannski áfellisdómur yfir störfum hér í þessum sal í gegnum tíðina. Það hvernig okkur tókst að mála okkur út í það horn sem við vorum komin í er náttúrlega hreint með ólíkindum. Ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli koma fram með þetta yfirgripsmikla frumvarp. Það tekur á ansi mörgu og þess vegna þarf kannski hver og einn þingmaður svolítið að ákveða hvernig hann ætlar að nálgast frumvarpið því það býður í sjálfu sér upp á mjög margar og langar ræður ef því er að skipta. En ég ítreka að ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli koma fram með frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála sem miðar að því að gera leyfisveitingar skilvirkari, samræmdari, gegnsærri. Markmiðið er að stytta afgreiðslutíma leyfisumsóknar án þess að draga úr gæðum málsmeðferðar eða gagnsæi.
Frú forseti. Ég veit ekki hvað ég á að vera ítarlegur. Án þess að hafa hlustað á allar ræðurnar hygg ég að það sé búið að telja upp allverulegan hluta af því sem ég hjó eftir þegar ég var að lesa yfir þetta. Meginefnið sýnir til að mynda kannski hversu yfirgripsmikill þessi bálkur er. Hér eru undir lög um Umhverfis- og orkustofnun, lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, lög um umhverfisábyrgðir o.s.frv., og svo náttúrlega orkulögin sem hæstv. ráðherra lagði hér fram fyrr í dag og ágæt umræða fór fram um.
Svo ég gleymi því ekki því sem hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson nefndi hér áðan, sem ég var nú ekki búinn að leiða hugann að, þá tek ég undir hvatningu hv. þingmanns til hæstv. ráðherra er varðar tafir vegna minja, taka það sérstaklega fyrir, fjalla vel um það hvernig menn bregðast við slíku. Eins og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson vék að þá held ég að það sé nánast sama hvar við berum niður, utan bæjar, innan bæjar, upp til heiða og fram til stranda, alls staðar þar sem umhverfið hefur verið með þeim hætti að hægt hefur verið að draga fram lífið, beita skepnum, sækja afla úr sjó, ég tala nú ekki um ef menn hafa einhvers staðar getað sett sig niður við notalegan hver og komist í náttúrulegt bað, þar munum við finna leifar. Án þess að ég sé að hvetja til þess að það sé lítið gert úr sögunni þá mega slíkir fundir heldur ekki verða til einhverra tafaleikja.
Það kemur fram í greinargerð, með leyfi forseta:
„Frumvarp þetta tekur mið af þessu og felur m.a. í sér almennari heimildir Umhverfis- og orkustofnunar til sameiningar leyfa en fyrri frumvarpsdrög gerðu ráð fyrir. Þá hefur verið fallið frá hugmyndum um að framkvæmdir í þágu orkuskipta og kolefnishlutleysis fái sérmeðferð að veittum rökstuðningi umsækjanda. Í staðinn er mælt fyrir um að verkefni sem samþykkt hafa verið í orkunýtingarflokk rammaáætlunar sæti sjálfkrafa forgangsmeðferð hjá Umhverfis- og orkustofnun.“
Þessu ber að fagna alveg sérstaklega. Ég held að þetta sé eitt af lykilatriðunum í þessu máli og búi til þess vegna nánast, ég segi kannski ekki sjálfrennireið en hjálpar verulega til. Það eru fleiri mjög áhugaverðir punktar í greinargerðinni, m.a. hérna, með leyfi forseta:
„Fleiri ákvæðum hefur verið bætt við frumvarpið […] en almennt miðar frumvarpið að því að samþætta og samræma leyfisveitingar, kæruleiðir og tengdar ákvarðanir til að stytta heildartíma afgreiðsluferla og að regluverk styðji betur skilvirka, vandaða, aðgengilega og gagnsæja stjórnsýslu. Þá er markmiðið að innleiða hugmyndafræði um einn afgreiðslustað“ — og fyrirgefið slettuna, frú forseti — „(e. one-stop shop). Með því er átt við einn afgreiðslustað stjórnsýslu gagnvart umsækjanda eða leyfishafa.“
Þetta er líka að mínu mati eitthvað sem verður til verulegra bóta, enda það hvernig við höfum þurft að slást við þessi mál í gegnum tíðina og undanfarin ár — þeir aðilar, hvort sem þeir eru í opinberri eigu eða einkaaðilar, sem hafa haft í hyggju að nýta þessar auðlindir hafa eiginlega þurft að vera annaðhvort sjálfir með verulega yfirgripsmikla lögfræðilega þekkingu eða þá verulegt fjármagn til að geta keypt sér slíka þekkingu til að geta vísað þeim veginn inni í kerfinu því að þetta var orðinn slíkur frumskógur að jafnvel tiltölulega litlum virkjunum inn til sveita var jafnvel orðið ómögulegt að koma í framkvæmd fyrir venjulegt fólk þar sem í flestum öðrum geirum samfélagsins hefði verið nóg að stofna bara eitt ehf.-félag fyrir 500.000 kr. og geta farið að vinna. Það gilti nú aldeilis ekki í þessum málaflokki. Hér horfir til verulegrar betrunar í því, enda eins og ég vék að áðan er fæðingin að því að þetta er hingað komið loksins alllöng.
Hér var vikið að því áðan hvenær þetta byrjaði, hvort það var í júlí eða júní 2024 eða hvort það var í febrúar, það er kannski einhver myllusteinn í þessari vegferð en hún er auðvitað miklu lengri. Við erum búin að ræða þetta í mörg ár og maður hefur alltaf einhvern veginn haft það á tilfinningunni að það séu nánast allir sammála. Samt höfum við ekki getað ýtt þessu áfram. Alltaf voru einhvers staðar einhverjar girðingar eða veggir eða endalausir kærufrestir þar sem tiltölulega fámennur hópur fólks með mjög sterkar skoðanir sem gat haft mjög hátt gat tekið mál í gíslingu. Þá er ég ekki bara að tala um einhverjar sýnilegar aðgerðir eins og við sáum hér á sínum tíma þegar við fórum í einhverja arðbærustu fjárfestingu í orkumálum sem Íslendingar hafa nokkurn tíma ráðist í, Kárahnjúkavirkjun, þar sem landsfrægir menn flugu fram og til baka yfir hálendið til að sýna okkur hvers lags perlur væru að fara undir og aðgerðasinnar hlekkjuðu sig við vinnuvélar. Ég er ekki að tala um þann þátt málsins, sem er öllum sem fylgjast með fréttatíma í sjónvarpi sýnilegur, heldur miklu frekar hinn hlutann. Ég held að kannski hinn almenni borgari sem á fullt í fangi með að sinna sinni vinnu, koma börnum í skóla og koma þeim í frístundir, allt þetta sem við þekkjum, við erum störfum hlaðin frá morgni til kvölds, gefi sér kannski ekki endilega tíma til að fylgjast með þessu. Það er þessi lobbíismi sem á sér stað á bak við tjöldin, birtist svo í einhverjum greinaskrifum og álitum og umsögnum og kærum. Ég kann ekki, frú forseti, einu sinni nöfnin á öllum þeim krækjum og hækjum sem hægt er að grípa til eða hefur verið hægt að grípa til til að koma Íslandi áfram. Hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni er skemmt, það sést á svipnum.
Undir 5. lið greinargerðarinar, sem heitir samráð, langar mig örstutt að grípa niður, með leyfi forseta, en þar segir að í ýmsum umsögnum er almennt stutt við markmið frumvarpsins „en kallað eftir því að gengið verði lengra í einföldun ferla og ýmsum ábendingum komið á framfæri“ þar að lútandi, eins og bent hefur reyndar verið á, held ég, hér fyrr í dag. Þess vegna, í ljósi þess sem ég var að segja varðandi allar þessar krækjur og hækjur, má vel færa fyrir því rök að hér líka inni í þessum sal hafi í gegnum tíðina verið einstaklingar með skoðanir — þeir hafa fullan rétt og hafa alltaf haft fullan rétt á sínum skoðunum og að rökstyðja þær og koma þeim á framfæri — sem voru þess eðlis að þær voru til að tefja, jafnvel skemma og við höfum þurft að glíma við það.
Nú líður tíminn hratt. Ég ætla að nefna sem dæmi, af því að hæstv. ráðherra situr hér inni í sal, að meira að segja litlar framkvæmdir eins og rennslisvirkjun í Bárðardal, með líklega mögulega minnsta jarðraski og umhverfisraski sem vatnsaflsvirkjun getur orsakað, þar sem til stóð að taka fljótið á mjög stuttum kafla, fossalausum, flúðalausum kafla, í stokk í gegnum túrbínu og aftur út í fljótið, auðvitað bara hluta af fljótinu, því eðlilega þarf vatnsrennslið að fá að fylgja farveginum — meira að segja þar varð andstaða og menn gátu beitt núverandi regluverki, sem stendur hér til að bæta og ég fagna því, og sagt að þar væri um að ræða rask á algjörlega einstöku hrauni, algerlega einstökum hraunmyndunum. Þetta er ekki langt frá því þar sem ég bý og hef alist upp. Mér lá við hlátri við sjónvarpið þegar ég sá þetta viðtal því að það háttar þannig til að þetta hraun byrjar uppi í Mývatnssveit og kemur niður Bárðardal, niður Reykjadal og niður Aðaldal og alla leið til sjávar, rétt við Laxamýri, ekki langt frá mörkum Húsavíkur og það er ekki einstakara en það að ferkílómetrarnir eru alveg endalausir.
Ég vona að hv. umhverfis- og samgöngunefnd fari vel yfir þetta frumvarp sem ég tel, eins og ég hef margítrekað, til mikilla bóta, ekki síst þó með tilliti til þess — og ég veit að nú hugsar einhver að mikill vilji meira — hvort hægt sé jafnvel að ganga enn þá lengra, vegna þess að það er mat þess sem hér stendur að það ríki allt að því neyðarástand þegar kemur að hreinlega þjóðaröryggismálum. Það er ekki bara, eins og vikið var að í ræðum sem voru fluttar hér á undan, að okkur gangi ekki vel að koma rafmagninu og raforkunni milli svæða heldur er raunveruleg hætta fólgin í því, eins og við erum minnt á síðast í dag, að mörg okkar helstu orkuöflunarsvæði eru kannski eðli málsins samkvæmt staðsett, ekki síst í jarðvarmanum, þar sem mögulega er mesta hættan á að eitthvað fari úrskeiðis. Við þurfum því, að ég tel, að auka og efla rannsóknir og aðgerðir á kannski jaðarsvæðunum, kaldari svæðunum. Þótt við séum með Þeistareyki, Bjarnarflag, Kröflu og svo vatnsaflið á Norður- og Austurlandi og svo aftur á Reykjanesskaga þá erum við á sama beltinu. Þegar náttúran hristir okkur þá erum við að glíma við þetta sama belti sem gengur þvert yfir eða nánast, ef við getum orðað það svo, frá tá til táar. Við erum nánast á endunum, suðvestur/norðaustur.
Þess vegna held ég að sé mikilvægt, frú forseti, að nefndin fari vel yfir málið, einbeiti sér að því að skoða hvort hægt er að hjálpa ráðherra að ganga enn þá lengra, um leið og ég brýni að sjálfsögðu ráðherra til að fylgja þessu máli vel eftir. Ég hygg að hæstv. ráðherra hafi fundið það vel í dag að hann hefur líklega sjaldan komið í þingsal og fengið slíkar viðtökur sem hann er að fá núna. Þetta fer að minna á að vera á íþróttakappleik. Hér er hæstv. ráðherra hvattur áfram, svo að a.m.k. mín stutta þingmennska man varla eftir öðru eins og hef ég þó setið hér af og til síðan 2018.
Að lokum, frú forseti: Ég fagna þessu máli. Ég tel þó að það sé ástæða til að skoða alvarlega í nefndinni hvort við getum jafnvel gengið örlítið lengra.