156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[20:05]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði bara rétt að bregðast við orðum hv. þm. Jóns Gunnarssonar og taka aðeins upp hanskann fyrir umhverfisverndarsamtök þar sem þingmaðurinn hélt því fram að þau væru sífellt að kæra og þannig tefja endalaust. Ég held nú að það sé meira en það sem spilar inn í, eins og bara tafaleikir í pólitík eins og við erum nú bara eiga hérna við rammann sem er í raun að skila sér alveg nákvæmlega eins og þegar honum var vísað aftur til endurmats hjá framkvæmdastjórn 2022, vegna þess að pólitíkin gat ekki komið sér saman um hann þá. Umhverfisverndarsamtök benda á að þegar þau geta kært þá er það ekki fyrr en eftir allt ferlið. Það er ekki fyrr en framkvæmdaleyfið er veitt sem þeim gefst kostur á að kæra. Þau geta ekki kært rammaáætlun og geta ekki kært umhverfismat framkvæmdaáætlana og þau geta ekki kært umhverfismatið. Það er ekki fyrr en framkvæmdaleyfið er veitt sem þau geta kært. Þannig að allur ferillinn fram að því — það er kannski ekki endilega hægt að kenna umhverfissamtökum alfarið um það. Ég vildi bara halda þessu til haga.