breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegur forseti. Það er kannski nákvæmlega þetta sem ég er einmitt að ávarpa hér, að við skoðum þetta, að tryggja það að athugasemdir — reyndar hafa allir í ferli rammaáætlunar tækifæri til þess að koma á framfæri athugasemdum og skoðunum og fá það ávarpað. Ég held að við þurfum að reyna að leiða frekar þá reglu inn að slíkt kæruferli sem kemur út af slíkum athugasemdum og er byggt á grundvelli einhverra athugasemda, athugasemda sem áður hafa komið fram, gerist fyrr í ferlinu. Það eru líka leiðir til að nálgast þetta einhvern veginn með þeim aðferðum að fyrr í ferlinu verði að koma fram með athugasemdir varðandi það sem síðar er verið að undirbúa að spyrja um og reyna að stöðva og tefja framkvæmdir með. Það eru svona atriði sem við getum gert til að einfalda flækjustigið með það að markmiði að gera kerfið skilvirkara. Það hlýtur að vera markmið okkar og það eru leiðir til þess að bregðast við því. Það er það sem ég er að vísa til nefndarinnar, að hlusta vel eftir sjónarmiðum í þessa átt án þess þó að við séum eitthvað að loka á það að fólk geti gert athugasemdir og komið sínum skoðunum á framfæri og haft áhrif á feril málsins með einhverjum hætti. En það eru dæmi um að þetta er að koma allt of seint fram og er að hafa áhrif alveg á síðustu stundu. Jafnvel eftir að búið er að bjóða út fyrstu áfanga (Forseti hringir.) koma fram kærur og það er alveg greinilegt að það er búið að vera í undirbúningi í langan tíma en hefur aldrei komið fram í ferlinu.