156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.

267. mál
[20:14]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegi forseti. Þetta er mikilvægt. Þetta er tillaga til þingsályktunar sem liggur fyrir um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár árin 2025–2029. Með þessu eru stigin afgerandi skref til að styrkja stöðu náttúruverndar, uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar. Það er rétt að undirstrika að framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár og framlagning þessarar framkvæmdaáætlunar byggir á 33. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013. Þar kemur fram að Alþingi taki afstöðu til þess hvaða svæði eigi að njóta forgangs við friðlýsingu næstu fimm ár. Fyrir liggur mat Náttúrufræðistofnunar á verndargildi svæðanna, auk frekara mats frá Náttúruverndarstofnun á því til hvaða verndarráðstafana skuli grípa til að tryggja það verndargildi og hver kostnaðurinn er við þessar aðgerðir.

Á síðustu árum hefur orðið æ ljósara hve mikilvægt er að tryggja vernd lífríkis og sjálfbæra nýtingu auðlinda, hvað þetta er brýnt viðfangsefni. Fyrir liggur að víða um heim, og hérlendis líka, er líffræðilegri fjölbreytni ógnað og náttúruauðlindir ofnýttar. Alþjóðasamningar eins og samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og Bernarsamningurinn um vernd villtra plantna, dýra og búsvæða þeirra kalla á að við bætum vernd náttúru og vistkerfa, endurheimt þeirra. Þessi ríkisstjórn hefur metnað til að gera betur í þessum efnum og þess vegna erum við að stíga skref til að gera Ísland að fullgildum aðila að IPBES, sem er alþjóðlegur vísindavettvangur um líffræðilega fjölbreytni. Fyrir liggur auðvitað markmið í alþjóðlegum skuldbindingum sem við höfum undirgengist, að tryggja að 30% lykilsvæða fyrir líffræðilega fjölbreytni skuli njóta verndar fyrir árið 2030. Ef við ætlum að ná þessum mikilvægu markmiðum er alveg ljóst að við þurfum að spýta í lófana og við þurfum að auka áherslu á náttúruvernd. Við þurfum að hafa hraðari hendur þegar kemur að samtali við landeigendur og sveitarfélög og reyna að skapa samstöðu um þetta allt saman.

Samkvæmt þeirri tillögu sem hér liggur fyrir er gert ráð fyrir friðlýsingu eða friðun á sex svæðum á næstu fimm árum. Þetta eru Goðdalur í Bjarnarfirði, Hengladalir í Ölfusi, Húsey og Eyjasel á Úthéraði, Lauffellsmýrar í Skaftárhreppi, Lambeyrarkvísl og Oddauppspretta í Borgarfirði og Reykjanes og Þorlákshver við Brúará. Tilgangurinn er að vernda fjölbreytt lífríki og einstakar vistgerðir eins og mýrahveri, rimamýrar, jarðhitalæki og fleiri dýrmætar náttúruminjar. Þá er lögð áhersla á að fjölga svæðum þar sem mikilvægar fuglategundir, t.d. skúmur og kjói, eiga búsvæði.

Á grunni þess sem ég hef nefnt hérna er lögð fram þessi tillaga um að fyrrnefnd sex svæði skuli vera á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025–2029. Þannig erum við að leitast við að mynda öflugt net verndarsvæða um allt land eins og náttúruverndarlögin og alþjóðlegar skuldbindingar gera ráð fyrir að við gerum það.

Eins og fram kemur í greinargerð þessa máls þá átti Umhverfisstofnun, þ.e. sá hluti hennar sem nú heyrir undir nýja Náttúruverndarstofnun, í yfirgripsmiklu samráði við sveitarfélög, landeigendur og hagsmunaaðila um val á svæðum og um framkvæmdaáætlunina sjálfa. Það liggur því fyrir að þessi tillaga er málamiðlun milli margra aðila, margra sjónarmiða. Að einhverju leyti eru þetta svona hangandi ávextir, þetta eru þau sex svæði sem var hægt að sameinast um og þetta er auðvitað bara fyrsta skrefið hér. Í sumum tilvikum töldu landeigendur ekki þörf á að svæðin yrðu vernduð eða þau sett á framkvæmdaáætlun og í öðrum tilvikum vildu landeigendur og sveitarfélög eiga betra samtal við yfirvöld um hvað fælist í því að svæðin yrðu friðlýst. Þess vegna er t.d. ekki gert ráð fyrir því að svæði á borð við Almenning við Geysi, Höfðaflatir, Norður-Melrakkasléttu eða Tjörnes verði friðlýst að sinni, en þetta samtal heldur bara áfram, þótt þau hafi verið hluti af svæðum sem fóru í lögbundna kynningu á tillögu að framkvæmdaáætlun.

Það er mikilvægt að virða sjónarmið landeigenda og sveitarfélaga og viðhalda eins góðri sátt um þetta og kostur er og reynslan sýnir að það er farsælasta leiðin að leita slíkrar sáttar milli allra hlutaðeigandi um þessi markmið sem við stefnum að og þá um að þekking og reynsla þeirra sem eiga jarðirnar og þekkja það jafnvel einna best fari saman við sérfræðiþekkinguna sem liggur svo hjá þeim stofnunum okkar sem fara með þessi verkefni þegar kemur að verndun og friðun. Það er nauðsynlegt að byggja upp traust og samráð þannig að fleiri svæði geti síðar komist á framkvæmdaáætlun og hlotið viðeigandi vernd. Þess vegna munu stjórnvöld halda áfram samtali við landeigendur jafnt sem sveitarfélög sem vilja vinna að frekari náttúruvernd á svæðum sem ekki hlutu brautargengi á framkvæmdaáætlun að þessu sinni.

Umfang tillögurnar markast af því markmiði að það ríki sátt í nærsamfélaginu um tillöguna. Auðvitað hafa heyrst raddir um að þetta sé óttalegur tittlingaskítur, bara sex svæði, og alveg eðlilegt að spyrja sig hvort það sé nóg, hvort hefði mátt ganga lengra. Ég vil í því samhengi bara benda á að þau svæði sem ekki náðu inn á framkvæmdaáætlun að þessu sinni verða áfram talin mikilvæg með tilliti til náttúruverndar á Íslandi og samtalið heldur bara áfram eins og ég fór hér yfir.

Alþjóðlegt markmið um að vernda 30% lands, stranda og sjávar krefst þess að við stígum rétt skref, stór skref, í náttúruvernd. Þess vegna tel ég mikilvægt að huga vel að þessum málum. Við þurfum ekki bara að skoða náttúruvernd á landi heldur líka á hafi en þar eru fjölmörg verðmæt og viðkvæm vistkerfi og vistgerðir. Þar skiptir líka þetta samráð máli sem ég fór yfir.

Af hverju þessi sex svæði, hvað er svona merkilegt við þessi sex svæði? Þau eru öll einstök á sinn hátt. Þau eru af ýmsum stærðum og gerðum. Sum eru lítil, önnur stór, en þau endurspegla öll með einhverjum hætti sérstöðu íslenskrar náttúru, bæði vegna óvenjulegra vistgerða og vegna sjaldgæfra dýra:

Goðdalur í Bjarnarfirði: Þetta er lítt snortið svæði þar sem jarðhitalækir, móahveravist og mýrahveravist vaxa. Sjaldgæfar tegundir eins og naðurtunga og laugadepla njóta verndar.

Hengladalir í Ölfusi: Eitt stærsta háhitasvæði landsins með fjölbreyttum jarðhitalækjum og gróskumiklu grónu landi. Þetta er staður með mikið útivistargildi og ekki tilviljun að hann lendir þarna.

Húsey og Eyjasel á Úthéraði: Er flatlent votlendissvæði með ríku fuglalífi; þar verpa t.d. skúmur og kjói sem eru tegundir á válista. Svo eru þarna áhrifamikil selalátur.

Lauffellsmýrar í Skaftárhreppi: Þetta er stærsta samhengi rimamýra á Íslandi, dýrmæt vistgerð sem þarfnast verndar.

Lambeyrarkvísl og Oddauppsprettur í Borgarfirði: Þetta eru lindir og kaldar uppsprettur þar sem finnast einlendar grunnvatnsmarflær, dvergbleikja og birkivaxnir hólmar.

Reykjanes og Þorlákshver við Brúará: Stórmerkileg mýrahveravist, heitar uppsprettur og vatnsplöntur sem aðeins vaxa í jarðhita.

Við skulum fara líka aðeins yfir samræmi við eldri náttúruverndaráætlanir, mikilvægt að við gleymum ekki þeim svæðum sem Alþingi hefur áður tekið afstöðu til að eigi að vernda. Það er auðvitað enn ólokið friðlýsingarferli á allmörgum svæðum sem voru samþykkt á náttúruverndaráætlun fyrir árin 2004–2008 og 2009–2013. Nýja framkvæmdaáætlunin leggur til að þeirri vinnu verði haldið áfram. Með þessu er tryggt að fyrri ákvarðanir glatist ekki þó svo að ekki hafi tekist að ljúka vinnu við þær. Það er auðvitað þannig að því fylgir ákveðinn kostnaður að koma upp öflugri innviðum, greiða fyrir landvörslu, viðhald, það má tala um fræðsluskilti, það er hitt og þetta. Kostnaðarmat framkvæmdaáætlunar náttúruminjaskrár fyrir 2025–2029 gerir ráð fyrir að sett verði upp skilti til fræðslu, gönguleiðir stikaðar og landvarsla tryggð. Þetta eru ráðstafanir sem eru til þess fallnar að bæta upplifun gesta og draga úr líkum á skemmdum á viðkvæmum vistkerfum.

Ég vil líka nefna það að í lokaorðum sínum leggur ráðgjafarnefnd náttúruminjaskrár áherslu á nauðsyn þess að við höldum ótrauð áfram að vinna með þessi svæði sem hlutu ekki brautargengi að þessu sinni. Þetta er bara mjög mikilvægt. Við erum auðvitað beintengd, Íslendingar, okkar einstöku náttúru, líka þeir sem eiga landið sitt og kannski ekki síst þeir og þeir sem nýta það. Ég held líka að flest okkar vilji leggja sitt af mörkum til verndar náttúrunni. Það er samvinnuverkefni stjórnvalda og almennings og fyrirtækja og samtaka ekki síst. Til þess að ná árangri hér þá þurfa fleiri skref að fylgja. Við þurfum að upplýsa betur um kosti verndar, hvernig vinna má út frá reglum friðlýsingar til að auka verðmæti svæða og tryggja heimafólki ávinning af þessari verndun.

Forseti. Með þessari tillögu tel ég að stigið sé mikilvægt skref í átt að þessari framtíðarsýn okkar að vernda með fullnægjandi hætti þau verðmæti sem ekki verða endurheimt þegar þau fara forgörðum. Að sama skapi þurfum við að tryggja sátt, gott upplýsingaflæði og opið samtal við nærsamfélög, við landeigendur, sveitarfélög og landsmenn alla.

Ég veit að hv. þingmenn munu sjá hversu mikilvægt þetta er allt saman og að þetta mun fá góða umfjöllun í umhverfis- og samgöngunefnd, enda held ég að það sé markmið okkar flestra að viðhalda og vernda fjölbreytni íslenskrar náttúru. Þessi framkvæmdaáætlun, sem byggir á náttúruverndarlögunum góðu frá 2013, er bara mjög mikilvægt tæki til nákvæmlega þess.

Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessarar tillögu til þingsályktunar og legg til að henni verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngurnefndar.