framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Ég hafna þessari gagnrýni Landverndar og tel að þetta séu bara mjög mikilvæg skref sem við erum að stíga með þessari framkvæmdaáætlun þótt við byrjum á sex svæðum. Mér finnst ekkert metnaðardauft við það. Eins og ég fór yfir í ræðu minni þá eru þetta svæði sem náðist góð sátt um að vernda. Hv. þingmaður spyr svo hvert sé hlutfall verndaðra svæða. Á landi er hlutfallið í dag nefnilega komið upp í einhver 25% u.þ.b. Þannig að ég ætla ekki að segja að það vanti ekki mikið upp á að það fari upp í 30% en það kann alveg að vera raunhæft — eða kann ekkert, það bara er fullkomlega raunhæft að ná þessu 30% hlutfalli á landi á næstu árum og gera það í sátt við nærsamfélagið, í sátt við landeigendur og sveitarfélög. Ég er sannfærður um að við getum uppfyllt alþjóðlegar skuldbindingar okkar hvað það varðar. Þegar kemur að hafi þá er miklu lengra í land. Þar eru vernduð svæði, eða friðuð hafsvæði, undir 1%. Það er sérstaklega fjallað um það í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að við ætlum að spýta þar í lófana. En auðvitað er mikilvægt að það gerist í góðri samvinnu og í góðu samhengi við sjálfbæra nýtingu fiskstofna og að þessi svæði verði valin vel og þetta unnið af kostgæfni. En þarna er, eins og ég segi, langt í land. Það er búið að friða eða vernda 1%, ætti að vera nær 30%, þannig að það væri djarfara að segja að það sé raunhæft að komast þangað á næstu árum. En ný ríkisstjórn er a.m.k. staðráðin í að spýta í lófana hér og gefa í þegar kemur að verndun hafsvæða. Það er mikilvægt.