framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og kannski spurning hvort hæstv. ráðherra þekki hlutfall stranda í þessu ljósi af því að það er nú sérstaklega tilgreint í frumvarpinu. Hæstv. ráðherra kom ágætlega inn á það sem snýr að friðun lands og sjávar en ég velti fyrir mér: Er í raun hætta á að þessi svæði fari forgörðum, þetta 131 svæði sem er tilgreint hérna? Þau eru nú eitthvað færri í upptalningunni, þau eru 54 á bls. 6 og 7 í greinargerðinni þar sem eru taldar upp tillögur Náttúrufræðistofnunar að svæðum á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Ef við skoðum þetta í því ljósi að af þessu 131 svæði næst sátt um sex svæði sem fara í þennan farveg samkvæmt þessari þingsályktunartillögu sem hér liggur fyrir. Mig langar bara að heyra afstöðu hæstv. ráðherra til þess hvort hann telji raunverulega hættu, bara í ljósi umhverfisvitundar sem hefur aukist á undanförnum árum og áratugum, á því að þessi svæði fari forgörðum þrátt fyrir að hægt gangi í friðuninni miðað við afstöðu Landverndar, sem ég deili skoðun með hæstv. ráðherra að sé ekki endilega sanngjörn í þessu samhengi.