156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.

267. mál
[20:35]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra fyrir sína yfirferð. Ég hjó eftir því við yfirferðina að þegar hæstv. ráðherra fjallaði um svæðið Norður-Melrakkasléttu í Norðurþingi, að undanskildum jörðunum Harðbak og Harðbak 2, Sigurðarstöðum, Brúnum og Núpskötlu annars vegar og svo Tjörneshreppi hins vegar, þá bætti hæstv. ráðherra við „að sinni“. Nú skilst mér og hef séð að erindi frá aðilum frá þessum svæðum voru afgerandi og í tilfelli til að mynda Tjörneshrepps þá held ég að sé óhætt að segja að viðbrögðin hafi verið ákveðin. Þess vegna er það tekið hér til hliðar og eftir því sem ráðherra segir „að sinni“.

Nú ætla ég ekki að leggja ráðherra orð í munn, ég ætla einfaldlega að spyrja: Þýðir þetta að það sé sem sagt ekki verið að taka þetta út vegna þess að umsagnirnar hafi verið nægjanlega málefnalegar til að þetta sé bara lagt til hliðar heldur vegna þess að það standi til að finna einhverja aðra leið til að koma þessum svæðum sem ég nefndi undir framkvæmdaáætlun um náttúruminjar?