framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu. Þarna nefndi hv. þingmaður svæði sem rötuðu ekki inn í þessa framkvæmdaáætlun að sinni, eins og hv. þingmaður vitnaði til, sem kemur fram í greinargerðinni. Þarna kom upp ákveðin hindrun í samtali ríkisins við landeigendur og þá er það bara þannig. Það er ekki þannig að við förum þá eitthvað að böðlast sérstaklega áfram en við ætlum heldur ekkert að útiloka að það breytist eitthvað í þessum samskiptum í framtíðinni. Hver veit nema einmitt að það verði ákveðin opnun, að afstaðan breytist eitthvað þegar það er farið að setja svæði á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár og friða samkvæmt því og það skilar ákveðnum ávinningi. Þess vegna finnst mér bara við hæfi að við notum þetta orðalag í greinargerð. Þarna erum við að tala um svæði sem eru mjög mikilvæg með tilliti til verndar og ég veit að landeigendur eru meðvitaðir um það og umgangast þessi svæði vel og treysta sér kannski bara til þess að vernda þau og tryggja vernd þeirra sjálfir og það er þá bara vel. En ég held að það væri samt óþarfi, bara vegna þess að eitthvert samtal kannski skilaði ekki árangri akkúrat núna, að útiloka að það geti gert það í framtíðinni. Eins og hér hefur komið fram mun ekkert hreyfast í þessum efnum nema í samtali og samráði og sátt. Það gildir um þessi svæði sem hv. þingmaður nefndi sem önnur.