156. löggjafarþing — 23. fundur, 1. apr. 2025.
framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
267. mál
Virðulegi forseti. Þetta er bara ágætisbrýning til mín, að fara ofan í kjallara og skoða skjalasafn ráðuneytisins og tillögur, þingmál og annað sem liggur fyrir frá árinu 1961 þegar umhverfisráðuneytið var reyndar ekki til en einhvers staðar hlýtur þetta nú að vera. Hvernig í ósköpunum svarar maður svona andsvari? Ég bara verð að játa mig sigraðan.