156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.

267. mál
[20:52]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja þetta fram og sömuleiðis þessa umræðu. Ég held að það sé engin ástæða til að skamma hæstv. ráðherra fyrir þá gagnrýni sem hér kemur frá Landvernd. Ég held að það sé langbest að sá sem eigi það bara gangist við því. En Landvernd telur það áhyggjuefni, virðulegi forseti, og hv. þm. Bergþór Ólason gerði þetta að umtalsefni, að aðeins sex svæði af 131 séu í áætluninni og að það sýni ekki fram á nægilegan metnað í málaflokknum.

Ég vil aðeins staldra við þetta vegna þess, eins og hæstv. ráðherra nefndi og ég vona að það verði áfram markmiðið, að menn hljóta að hafa markmið þegar þeir fara í aðgerðir sem þessar. Í mínum huga er það, og mér heyrist að það sé enn þá sama áhersla, líffræðileg fjölbreytni. Hvað er líffræðileg fjölbreytni? Það er geirfuglinn. Geirfuglinn er svona það sem við getum skammast okkar mest fyrir. Við erum þjóð sem hefur nú kannski ekki gert mikið af því að útrýma lífverum, alla vega ekki miðað við mjög margar aðrar, en við viljum ekki lenda í neinu slíku aftur. Þess vegna verða menn að hafa einhverja sýn á það hvað þeir eru að gera og af hverju. Það er alveg rétt að hér var gríðarlega mikið undir, 131 svæði. En mín nálgun var þessi: Við erum að gera þetta af ástæðu og við hljótum að líta til þess hvar áhættan er þegar kemur líffræðilegri fjölbreytni og eigum við ekki að setjast niður með viðkomandi landeiganda og spyrja: Hvernig líst þér á, vegna þess að þú situr á miklum verðmætum, að þetta svæði þitt fari á skrá? Ég nefni þetta vegna þess að það sem ég lærði af þessu ferli var að það styrkti mig enn frekar í því sem ég gerði, að færa verkefnin þangað sem þau eiga heima, þ.e. stofnanirnar út á land, vegna þess að það er ákveðin gjá á milli fólks sem býr á viðkomandi svæðum og kannski stundum sérfræðinga og það er ekkert leyndarmál. Hv. þm. Ólafur Adolfsson þekkir það og kannski fleiri hv. þingmenn að það var gengið þannig fram af klaufaskap, ekki af neinum illum ásetningi, að sumir landeigendur eru mjög ósáttir við að menn hafi verið að velta því fyrir sér að setja þeirra svæði eða þeirra lönd á þennan lista. Sérstaklega var það vegna þess að í viðkomandi stofnunum vildu þeir ekki fara að heimsækja fólk, það var stefna að heimsækja ekki fólk í janúar og febrúar út á land, heldur buðu upp á Zoom-fundi. Það er ekki alveg þannig að allir séu þar. Forstöðumaðurinn að vísu greip vel inn í. Auðvitað er niðurstaðan sú að ég vara mjög við því, ég held að það hafi ekki verið gert en ég vara við því að menn ætli einhvern tímann að fara þá leið að setja eitthvert svæði eða land á náttúruminjaskrá eða friðlýsa með öðrum hætti án þess að gera það í sátt við landeigendur.

Það er nefnilega svo að það er hagur okkar allra að viðhalda líffræðilegri fjölbreytni. Það er óumdeilt. Svo er það líka þannig að það er oftar en ekki hagur landeiganda að sérstaða þeirra lands sé dregin fram og hefur oft aukið verðmæti lands. Ég hef farið á fundi t.d. hjá landeigendafélaginu þar sem var farið sérstaklega yfir þá reynslu. Auðvitað er það hagur landeiganda að fá vitneskju um í þessu tilfelli líffræðilegri fjölbreytni á sínu landi.

Ég nefni þetta líka sérstaklega vegna þess að ég hef áhyggjur af því þegar menn nálgast þetta út frá prósentutölu. Hæstv. ráðherra nefnir 25% af landinu, að við séum búin að ná því marki. Það eru nokkrar skilgreiningar á því. Við erum komin með ansi hátt hlutfall lands sem er annaðhvort friðlýst eða í þjóðgörðum sömuleiðis og ef ég man rétt þá er hlutfallið ívið hærra, en það er ekki aðalatriðið. Það gerist ekkert þegar menn ákveða það, líta á landakort og teikna eitthvert svæði og segja: Þetta er hér með friðlýst eða fer á náttúruminjaskrá. Heimurinn verður hvorki betri né verri á eftir. Það er ekki þannig. Eins með hafsvæðin, 30% er bara eitthvert markmið sem menn setja sér en það er ekkert vísindalega sannað að heimurinn verði eitthvað betri ef við verndum 30% af hafsvæðunum. Hins vegar er mjög mikilvægt að þú verndir ákveðinn hluta hafsvæða, bæði á sjávarbotni og viðkomandi svæði, m.a. út af líffræðilegu fjölbreytni og ýmsu öðru.

Ég tel mjög mikilvægt að við nálgumst þetta þannig og ég er ánægður að heyra hjá hæstv. ráðherra að hann leggi áherslu á samtalið og samráðið. Staðreyndin er þessi, virðulegi forseti, og ég fann það í því embætti sem ég gegndi í síðustu ríkisstjórn, að viðhorf fólks til náttúruverndar eru búin að breytast mjög. Ekki það að fólk sé ekki enn þá náttúruverndarsinnar af því að ég held að það sé í eðli Íslendinga að vera náttúruverndarsinnar, ég tala nú ekki um það fólk sem býr við, ég veit ekki hvernig á að orða það, mikla náttúru, hefur gott aðgengi að náttúru. Ég held að það sé almennt. Nú er það þannig að við höfum sett upp þjóðgarða um langa tíð og minn flokkur var í forystu með náttúruvernd og þá þætti. Nú finnst mörgum þetta vera neikvætt vegna þess að þeir telja að þetta þýði að það sé verið að ganga á rétt fólks til þess m.a. að njóta náttúrunnar og sömuleiðis verið að ganga þannig fram að það sé ekki hægt að nýta náttúruauðlindir. Þetta skaðar málstaðinn. Það skaðar að við getum náð þeim árangri sem við viljum ná.

Ég vona þess vegna og treysti því að hæstv. ráðherra fylgi því eftir að þetta sé samtal við þá aðila sem hafa hagsmuna að gæta. Ég held að það samtal, sem getur eðlilega tekið tíma, kalli fram bestu niðurstöðunnar því ég held að það séu mjög fáir, virðulegi forseti, fylgjandi því að líffræðileg fjölbreytni sé ekki til staðar. Ég held t.d. að ef við ættum nokkra geirfugla eftir og það væri gerð skoðanakönnun meðal þjóðarinnar og hún spurð: Viltu drepa síðasta geirfuglinn? þá held ég að það væru mjög fáir sem segðu já. Ég nefni geirfuglinn vegna þess að það er bara gott dæmi, dæmi sem allir þekkja. En þetta á auðvitað við um fuglategundir og fisktegundir og ýmislegt úti í náttúrunni sem er verðmætt og skiptir máli og við berum ábyrgð á.

Ég ætla bara að taka þessa gagnrýni á mig frá Landvernd og losa hæstv. ráðherra undan því en á sama tíma segja eins og er að mér finnst þessi nálgun bera vott um skilningsleysi. Það er vont ef um eitthvað sem við ættum öll að geta verið sammála séu miklar deilur. Þá er ég að vísa bara til náttúruverndar í heild sinni. Ég held að það skipti mjög miklu máli að samtök sem kenna sig við náttúruvernd gangi fram með virðingu við alla. Við þurfum öll að gera það. Það var upplifun að fá þetta fólk sem var mjög ósátt þó svo að það væri alveg ljóst að við ætluðum aldrei að fara gegn vilja þess. Það var mjög áhugavert því ég þekki nú sumt af þessu fólki. Þetta eru allt mikil náttúrubörn sem hafa lagt mikið upp úr því og lungann af sinni ævi hafa notið náttúrunnar í bestu merkingu þess orðs og þá alls ekki gengið að henni með neinum öðrum hætti en með virðingu og hugað að sjálfbærni og vilja styrkja og efla þá náttúru sem þau bera ábyrgð á.

Það er mikilvægt að við séum með eins góða sátt og mögulegt er um þessi mikilvægu mál og þá er ég vísa til náttúruverndar. Það gerist með samtali og að fólk fái upplýsingar sem geta nýst því vel í leik og starfi og ég treysti því að hæstv. ráðherra haldi áfram, eins og hann nefndi hér áðan, að vinna með þeim hætti.