framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.
Virðulegur forseti. Mig langar að byrja á að koma hérna inn á þessa 30% verndun eða það sem er kallað á frummálinu, á ensku, „30 by 30“, að vernda 30% af bæði landi og sjó fyrir 2030. Þegar kemur að hafsvæðinu í kringum Ísland, eins og kom hér fram áðan, þá er um 1% verndað. Það er sjálfsagt mál fyrir okkur að vernda viðkvæm svæði, sérstaklega við strandlengjuna og annað, sem hafa einhverja sérstöðu en þar sem við sem þjóð sem stundum sjálfbærar og ábyrgar veiðar sem eru byggðar á vísindalegri ráðgjöf, þar sem vísindastofnun, Hafrannsóknastofnun, hefur fullar heimildir til að loka svæðum, vernda svæði, ef svo þykir bera undir að það sé nauðsynlegt, þá tel ég ekki nauðsynlegt að við séum að afmarka og skilgreina allt að 30% af hafsvæðinu sem verndarsvæði. Þetta er skiljanlegt á þeim svæðum og þeim stöðum í heiminum þar sem ofveiði er stunduð, viðkvæm kóralrif eða annað, þar sem eru allt aðrar aðstæður, hvort sem það er í nýtingu auðlindanna sem er jafnvel arðrán, ofveiði og með allt öðrum hætti heldur en við Ísland. Í staðinn fyrir að fara að innleiða svona og ætla bara að fara á fullum hreyfli í að innleiða svona vinnu þá verðum við að horfa til þess í rauninni í hvaða umhverfi við sem Íslendingar erum, við sem erum leiðandi í rauninni hér á hafsvæði okkar í að nýta auðlindir sjávar með sjálfbærum og ábyrgum hætti. Það er okkar einkennismerki að við veiðum hér og nýtum veiðistofnana alltaf eftir vísindalegri ráðgjöf og höfum ekki í mörg ár, áratugi, farið í það að prenta kvóta.
Það er annað sem mig langar líka að nefna hérna. Það eru athugasemdir sem bæði Landsvirkjun og Orkuveitan koma inn á. Ég held að það sé mikilvægt þegar við erum að ræða svona mál að við verðum að horfa til í rauninni orkunýtingarinnar sem getur verið á þessum svæðum. Með leyfi forseta langar mig að vitna hér í greinargerðina, undir lið 1.4, Samráð um tillögu til þingsályktunar, og hér segir m.a., með leyfi forseta:
„Landsvirkjun leggur áherslu á að við undirbúning nýrra friðlýsinga sé mikilvægt að taka tillit til reksturs aflstöðva, þ.m.t. mótvægisaðgerða og annarra inngripa sem miða að viðhaldi lífríkis og náttúru, og vísar til fyrirhugaðrar friðlýsingar Húseyjar og Eyjasels á Úthéraði. Landsvirkjun bendir á að svæðið sé í nágrenni við stærstu vatnsaflsvirkjun landsins, Fljótsdalsstöð, og gætir áhrifa virkjunarinnar á svæðinu. Landsvirkjun bendir jafnframt á að við undirbúning þingsályktunartillögunnar hafi verið bent á ýmis atriði varðandi friðlýsingartillögu Húseyjar og Eyjasels sem enn eiga við og hafi verið óskað eftir því í fyrri umsögn til Umhverfisstofnunar að mörk þess svæðis sem ætti að friðlýsa tækju tillit til þeirra aðgerða sem líklegt er að ráðast þurfi í vegna tilfærslu óss Lagarfljóts og Jökulsár á Brú þannig að mörk svæðisins yrðu færð inn fyrir ósinn.“
Hér er á öðrum stað, með leyfi forseta, frá Orkuveitunni:
„Orkuveitan bendir á að fyrirtækið sé með nýtingarleyfi á jarðhita á Hellisheiði og að afmörkun tillögu að friðlýstu svæði sé innan afmörkunar nýtingarleyfisins. Nú þegar hafi níu holur verið stefnuboraðar undir Hengladali og að nýting holanna til vinnslu og niðurdælingar hafi hvorki haft áhrif á ásýnd svæðisins né verndargildi svo vitað sé. […] er það mat Orkuveitunnar að ekkert sé því til fyrirstöðu að Hengladalir verði settir á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár ef hægt er að tryggja að nýting á svæðinu verði áfram heimil með stefnuborunum undir svæðið miðað við gildandi nýtingarleyfi.“
Þarna erum við komin inn á að við verðum að horfa til orkunýtingar sem er á svæðinu og ég trúi ekki öðru en að við getum horft til og tekið tillit til þessara athugasemda sem snúa að ósunum niðri á Héraðssandi annars vegar og stefnuborunum undir Hengladali hins vegar.
Í þriðja lagi langar mig að nefna umsagnir landeigenda um frumvarpið. Það eru t.d. umsagnir frá landeigendum jarðanna Löngufjara og Langáróss að Hjörsey. Það eru líka umsagnir frá landeigendum í Tjörneshreppi þar sem því er mótmælt og þeir bara algerlega hafna því að þeirra jarðir fari undir þessa áætlun. Mig langar, með leyfi forseta, að fá að lesa hér upp stuttan bút sem kemur að eigendum jarðanna Skinnalóns, Oddastaða, Harðbaks I og II, Sigurðarstaða og Grjótness I og II sem allar eru á Melrakkasléttu og eigendur jarðanna á Melrakkasléttu reifuðu í umsögnum sínum m.a. óánægju með þá afstöðu Umhverfisstofnunar að frekara samtal þurfi við landeigendur um mögulegar náttúruverndaraðgerðir á jörðum þeirra í samhengi við náttúruminjaskrá almennt og óánægju landeigenda með afstöðu ráðgjafarnefndar náttúruminjaskrár sem tekur undir afstöðu Umhverfisstofnunar. Landeigendur gagnrýna einnig að þeir hafi ekki fengið umsagnarbeiðni þegar drög að þingsályktun voru sett í samráðsgátt og að ekki sé minnst á alla jarðeigendur á Norður-Melrakkasléttu sem mótmæltu því að jarðir þeirra væru settar á framkvæmdaáætlun. Þeir telja ekki þörf á frekara samtali varðandi sínar jarðir og þess hvort skoða eigi áform um náttúruvernd samkvæmt framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár og hafna því að jarðir þeirra verði settar á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár. Hér er það, virðulegur forseti, algjörlega kýrskýrt að hér eru landeigendur sem segja bara nei takk við stofnanir í Reykjavík sem hafa einhverjar hugmyndir um hvað eigi að friðlýsa og hvað eigi ekki að friðlýsa.
Við vorum hér fyrr í dag að ræða um jafnvel þjóðhagslega mikilvæg verkefni sem snúa að því að koma raforku til landsmanna og byggja upp atvinnulíf. Við erum ekki að tala um það. Við erum að tala hér um friðlýsingar og hvað Umhverfisstofnun og aðrar undirstofnanir og hliðarstofnanir vilja gera. Ef landeigendur segja nei takk þá eigum við að virða vilja landeigenda. Við eigum að muna að eignarrétturinn er einn af hornsteinum okkar samfélags og það að við ætlum að ganga hér yfir landeigendur — ég er ekki að segja að það sé verið að gera það hér en það kemur skýrt fram að því er hafnað að vera í þessari framkvæmdaáætlun. Við eigum að virða vilja landeigenda þegar kemur að þessum málum, hvort það eigi að friðlýsa landið þitt eða ekki og ég þekki það af eigin reynslu. Þegar ég var formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar og nýtekinn við 2010 kemur næstum því heil flugvél frá Reykjavík, frá umhverfisráðuneytinu og Umhverfisstofnun ásamt ráðherra, þetta var heil rúta, sem kom niður á Reyðarfjörð og ætlaði að tilkynna okkur að það ætti að fara að friðlýsa allt Gerpissvæðið. En ég var upplýstur um að það var í bullandi ágreiningi og mikilli andstöðu við landeigendur, bæði í Sandvík og Vöðlavík, þannig að bæjarstjórn, bæjarráð Fjarðabyggðar, hafnaði alfarið að það yrði haldið áfram í þessari vegferð. Og hvernig endaði sú friðlýsing? Jú, hún endaði þannig, sem betur fer, að ríkið friðlýsti þær jarðir sem ríkið á á Gerpissvæðinu ásamt jörðum sem eru úti á Barðsnesi þar sem landeigendur höfðu lýst sig viljuga og reiðubúna til að fara í þessa friðlýsingu en aðrar jarðir voru látnar eiga sig af því að við virðum eignarréttinn og vilja landeigendanna.