156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár fyrir árin 2025--2029.

267. mál
[21:13]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Svo það sé alveg skýrt þá var ég ekki að beina því að hæstv. ráðherra að hér væri um að ræða að við værum að fara yfir landeigendur. Það sem ég var að benda á hins vegar er að í umsögnunum kemur fram mjög skýr vilji margra landeiganda sem bara frábiðja sér að vera inni í þessum áætlunum. Ég held að það sé það sem við verðum að horfa til og til framtíðar. Ég get tekið undir með hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni að við hrukkum aðeins við þegar hæstv. ráðherra sagði „að sinni“, það varð til þess að það var sérstök ástæða til að koma hér upp og fara yfir þessa andstöðu landeigenda. Ég held að það þurfi í rauninni að vera að frumkvæði landeigenda sjálfra ef þeir vilja fara inn í slíkar áætlanir, vera hluti af slíkri friðlýsingu, en ekki með einhverju yfirboði frá einhverjum stofnunum og ráðuneytum um hvernig þessum málum sé háttað heima í héraði og þeirra löndum. Ég tek undir með hæstv. ráðherra, í þessari tillögu er ekki verið að tala um að ganga þvert á vilja landeigenda. En það er gott að ítreka og taka fram að andstaðan er víða og við verðum að bera virðingu fyrir eignarrétti fólks.