156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[21:45]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma fram með þetta mál sem, eins og hann nefndi, var unnið af hópi sem ég setti á laggirnar sem hafði unnið að rammanum mjög lengi, fyrst þó vindinum. En ég hef mjög stuttan tíma, ég kem í ræðu hér á eftir, og ætla að spyrja að þrennu: Í fyrsta lagi: Það var í frumvarpinu ákvæði til bráðabirgða sem miðaði að því að það yrði klárað að vinna verndarsvæðin. Af hverju? Það er það sem Norðmenn gerðu, þá gátu þeir hætt með rammann í kjölfarið. En það er búið að taka það ákvæði út. Í öðru lagi: Skil ég hæstv. ráðherra rétt, af því að hann er með tilbúna þrjá ramma og er búinn að leggja einn fram, að hann ætli ekki að setja fleiri inn á þessu þingi? Sömuleiðis um vindinn, sama hvað okkur finnst um einstaka þætti þá liggur okkur á og það er það sem kemur fyrst, tekur skemmstan tíma. Hvað er að frétta af vindinum?