verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Varðandi bráðabirgðaákvæðið þá ákvað ég að leggja frumvarpið ekki fram með því vegna þess að við erum að fara í frekari vinnu sem lýtur að samspili náttúruverndarlaga og rammaáætlunarlöggjafarinnar. Mér fannst ekki tímabært að leggja þetta bráðabirgðaákvæði fram í þessari mynd. Raunar klippti ég líka markmiðsákvæðið út, eins og það hafði verið skrifað, vegna þess að við erum í þessari heildstæðu vinnu sem lýtur að því að binda rammaáætlun sérstaklega við orkuöflunarstefnu stjórnvalda og vildum huga að því við breytingar á markmiðsákvæði laganna.
Hv. þingmaður spyr um þær tillögur til rammaáætlunar sem liggja fyrir. Ég geri ráð fyrir að við komum með inn í þingið strax á næstu vikum aðra rammaáætlunartillögu en hvað varðar þá tillögu sem lýtur að vindorkukostum þar sem tíu vindorkukostum er raðað í biðflokk þá geri ég ekki ráð fyrir að leggja hana fram fyrir þingið fyrr en við höfum skapað hérna lagaumgjörð um vindorkunýtingu. Ég tel ekki tímabært að koma með fleiri vindorkukosti inn í þingið fyrr en sú vinna er komin vel á rekspöl, a.m.k. búið að leggja þá vinnu fyrir þingið. Stutta svarið er: Ég geri ráð fyrir því að það komi önnur rammaáætlunartillaga inn í þingið en ekki sú sem er með vindorkukostina innanborðs.