verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir skýr svör. Ég hef nokkrar áhyggjur af þessu. Ástæðan fyrir því að á sama tíma og við vorum með breytingar á rammanum sem sneru að vindinum, til að flýta fyrir því, þá lét ég sömuleiðis, eins og hæstv. ráðherra nefnir, hafa samfellu í þessu, gerði verkefnisstjórninni að gera það, er að okkur liggur svo á. Þess vegna liggur okkur á að mínu áliti að fá báða rammana inn því að maður veit aldrei hvernig þingið tekur á málum. Þess vegna var komið fram með breytingarnar á lagaumhverfi vindorkuvera en sömuleiðis haldið áfram að vinna í rammanum um vindinn vegna þess að okkur liggur á. Alveg sama hvernig menn líta á þetta þá þurfum við á öllu að halda og það sem tekur skemmstan tíma, langskemmstan tíma, að koma í framleiðslu þannig að við fáum rafmagn er vindurinn. Þannig að ég, virðulegur forseti, hef ákveðnar áhyggjur af því að ráðherra ætli að bíða með það vegna þess að tíminn er naumur.