156. löggjafarþing — 23. fundur, 1. apr. 2025.
verndar- og orkunýtingaráætlun.
268. mál
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra. Seinni hluti kannski þessarar spurningar snýr að því, í ljósi núgildandi nýtingarflokks eins og hann lítur út, hvernig hæstv. ráðherra sér fyrir sér að verði skipting þessara 5 TWst á næstu tíu árum milli vatnsafls, jarðvarma og mögulega vindafls, eins og var nefnt hér áðan.