verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Varðandi afmörkun þegar kemur að friðlýsingu mögulegra, ætli það myndi ekki kallast vindorkuhugmynda út frá þeim breytingum sem við leggjum til í frumvarpinu þá er það hárrétt hjá hv. þingmanni, það er ekki tekið á því í þessu frumvarpi. Það er í rauninni bara fjallað um vatnsafl og jarðvarma í þessu samhengi þegar kemur að afmörkun. En eins og ég nefndi líka þá er vindurinn undir í næsta áfanga þessarar endurskoðunar og það er eitthvað sem við ætlum að taka á í frumvarpi sem kemur fram í haust. Þar erum við að staðsetja svolítið vindinn gagnvart rammaáætlunarferlinu. Þar erum við að skoða ákveðnar útfærslur og sviðsmyndir sem við eigum eftir að taka afstöðu til.