verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að nefna þetta atriði. Vindorka á hafi er sérstakt áhugamál hjá mér og ég gætti þess sérstaklega einmitt þegar við vorum að semja frumvarpið um einföldun leyfisferla og núna er komið inn í það frumvarp ákvæði sem liðkar fyrir rannsóknum vegna vindorku. Það er mjög mikilvægt. Það var unnin ágætisskýrsla um vindorku á hafi á síðasta kjörtímabili sem fagstofnanir nokkurra ráðuneyta komu að og þar eru lagðar til ákveðnar aðgerðir til að að koma þessu í skýrari farveg og þar er m.a. bent á að það vanti lagaumgjörð um þess konar nýtingu. Við erum kannski að einhverju leyti að byrja á því núna með þessu nýja ákvæði sem var að koma inn í einföldunarfrumvarpið, að skapa svoleiðis umgjörð. Við erum að stíga skref til að auðvelda rannsóknir á hafi og ég veit af fyrirtækjum sem eru mjög áhugasöm um þetta. Þetta er bara (Forseti hringir.) eitt af því sem tekur við núna þegar við erum búin að skila þessum frumvarpabunka inn í þingið, að byrja að hugsa næstu skref varðandi vindorkunýtingu á hafi.