156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:01]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Við ræðum enn eitt málið sem tengist raforkumálum þjóðarinnar og þetta er búinn að vera mikill raforkudagur í umræðunni. Það er rétt, ég tek undir með hæstv. ráðherra, að það er ekki gott framboð af nýjum virkjunarkostum á framboðshliðinni eins og málin standa núna og við erum að reyna að bæta úr þessu umhverfi. Það er kannski tvennt varðandi kosningaloforðið um 5 TWst hjá Samfylkingunni fyrir kosningar, með svona léttum hugarreikningi þá gætu það verið 700 MW í uppsettu afli til að fá þá orku, kannski einhvers staðar á bilinu 60–80 MW á ári yfir tíu ára tímabil að meðaltali. Þetta er svona léttur hugarreikningur a.m.k. (Umhvrh.: Þetta er afturþungt.) þegar maður kemur hérna upp. Þetta þýddi að við værum nánast með eina Hvammsvirkjun á ári. Hún er uppsett í 90–95, ef ég man rétt. Afturþungt, einmitt, þetta gamla góða, það er strax farið að gefa eftir varðandi það sem á eftir að koma. En þetta er það sem við erum að fást við. Ef hæstv. ráðherra gæti aðeins komið inn á þetta. (Forseti hringir.) — Ég á 20 sekúndur eftir.

(Forseti (KGH): Það er rautt ljós.)

Þessi klukka hefur verið eitthvað furðuleg hér. Þetta er eitthvert rugl, herra forseti.

(Forseti (KGH): Taktu tuttugu.)

Takk fyrir. (Gripið fram í: Mínútur. )Þetta sló mig alveg út af laginu, herra forseti. En ef hæstv. ráðherra gæti komið inn á þessi 60–80 MW, sem er afturhlaðið. En síðan eru það tekjurnar hjá sveitarfélögunum. Þetta hefur verið mikil umræða mjög lengi, við fórum í þetta í orkustefnunni sem kom hérna 2020, til 2050. Hvar liggur það mál hjá hæstv. ríkisstjórn, hvenær megum við sjá einhverjar hugmyndir koma fram varðandi þau mál?