verndar- og orkunýtingaráætlun.
Herra forseti. Seinni spurningin var varðandi sveitarfélögin og aðkomu að raforkumannvirkjum, tekjur af þeim. Stórt og mikið mál, reyndar grundvallarmál, held ég, til að flýta fyrir framkvæmdum í raforkukerfinu og er kannski eitt af því sem þarf að ræða. Það hefur verið töluverð umræða um þetta og í orkustefnunni á sínum tíma, 2020, var ekki tekið á þessu, í orkustefnu til 2050. Það var látið bíða, þótti í pólitíkinni stórt og mikið mál til að klára. Það var það sem gekk af áðan, þetta með nærsamfélagið og tekjur af raforkukerfinu, ef hæstv. ráðherra gæti rétt svona hlaupið á því.
Varðandi rammaáætlun og þjóðaröryggi langar mig rétt að koma inn á hvort ekki sé kominn tími til að fara að skoða í þessari vinnu sem snýr að rammaáætluninni það sem við höfum tekið umræðu um í vetur, varðandi landsvæði út frá náttúruvá, þ.e. að finna þau landsvæði sem eru öruggust. Á þessum degi er mjög svo viðeigandi einmitt að ræða það. Sá þáttur hefur ekki almennt verið mikið í umræðunni, en er ekki kominn tími til þess að skoða þetta?
Síðasta atriði væri síðan rammaáætlun, eins og hæstv. ráðherra kom með, með fáum kostum, að fækka þeim. Til dæmis í fjórða ramma, ef ég man rétt, voru 42 kostir, 35 í vindi. En þarf ekki einmitt að vera með, eins og hæstv. ráðherra lagði fram hér fyrr á þinginu, færri kosti og taka þá efnislega þannig fyrir?