156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:09]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja þetta mál hér fram sem á sér forsögu. Ég vil hvetja alla hv. þingmenn, sérstaklega þau sem eru í þeirri nefnd sem fær þetta mál inn, að skoða það. Það var náttúrlega nálægt kosningum eða hvort það var rétt eftir kosningar sem skýrsla var gefin út, skýrsla starfshóps um endurskoðun á lögum um rammaáætlun, sem hæstv. ráðherra er að vísa til hér. Í þessu er farið nákvæmlega yfir hverjar tillögurnar voru frá hópnum sem samanstóð af Hilmari Gunnlaugssyni, Björt Ólafsdóttur og Kolbeini Óttarssyni Proppé. Forsagan er þessi: Ég setti þennan hóp á laggirnar fljótlega eftir að við tókum við í ríkisstjórn og hann fór fyrst að skoða rammaáætlun sem sneri að vindinum. Af hverju var fyrst farið í vindinn? Á þeim tíma, þó að það sé stutt síðan, var ekki talað af tortryggni um vindorku. Þá sögðu þeir sem voru mest á móti virkjunarframkvæmdum: Vindurinn er lausnin. Drífðu það í gegn og þá getum við sett þessa hluti af stað. Mikið hefur breyst á tveim, þrem árum en hins vegar liggja fyrir tillögur um það að hafa flýtimeðferð fyrir þá virkjunarkosti í vindi sem uppfylla skilyrði sem flestir eru sammála um, þar með talið að kostirnir eigi að vera á röskuðum svæðum eins og hæstv. ráðherra vísar til. Sú vinna var mjög umfangsmikil, fól m.a. í sér fundi úti um allt land, opna fundi, fyrir utan að hitta endalaust af fólki. Þetta er samfella þannig að þegar segir hérna í greinargerðinni að vinna við endurskoðunina hafi ekki byrjað fyrr en í byrjun árs 2024 þá er það ekki rétt vegna þess að hún byggði á allri vinnunni sem var búið að vinna. Þetta gekk alltaf út á það að skoða rammann, hvernig ætti að breyta og bæta rammann.

Nú veit ég ekki hvort og hvenær menn komast á þann stað, en hvort sem mönnum líkar betur eða verr þá náum við aldrei okkar markmiðum nema nýta vindinn. Síðan er hægt að setja vindorkuver á ótrúlega vonda staði. Við skulum reyna að sleppa því, það er alla vega mín sýn. En við komumst ekki hjá þessu og ef við ætlum að flýta okkur, sem við verðum að gera því að okkur vantar orku, þá verðum við að fá vindinn inn.

Í þessari skýrslu er ekki bara frumvarp, skrifað út frumvarp sem er svona nokkurn veginn eins og það er hérna frá hæstv. ráðherra, heldur er líka sagt frá því hver forsagan er og sömuleiðis frá reynslu Norðmanna. Menn hafa mjög mikið vísað til þess að Norðmenn voru með ramma og hættu síðan með hann. Af hverju hættu þeir? Það er vegna þess að hugmyndin á bak við þetta er að taka frá ákveðin svæði þar sem þú ætlar ekki að virkja. Ef við værum búin að því þá þyrftum við engan ramma. Það var niðurstaða Norðmanna. Þegar þeir voru búnir að fara í gegnum þetta verndarferli, þá voru þeir bara með almenna löggjöf eða reglur þegar kom að því að virkja græna orku.

Þess vegna hef ég pínu áhyggjur af því sem tengist ákvæði til bráðabirgða sem var í frumvarpinu sem hópurinn skrifaði. Það miðaði að því að Náttúrufræðistofnun skyldi vinna greiningu á jarðhitasvæðum, ám, vatnsföllum eða vatnasviðum landsins sem borið geta virkjun umfram 10 MW að uppsettu rafafli o.s.frv. Hópurinn taldi að það ætti að koma með tillögu um það hvað í rauninni við ættum að vernda. Þá getum við hætt þessu með rammann, þá er enginn tilgangur með honum lengur. Þá erum við búin að taka þau svæði frá sem einhvers konar sátt yrði um. Af hverju nefni ég þetta og af hverju er ég að hvetja hæstv. ráðherra til að koma sem fyrst inn með rammana sem eru tilbúnir? Um leið og þeir eru tilbúnir á að koma með þá inn vegna þess að okkur liggur á. Á síðasta kjörtímabili fóru loksins hlutirnir aftur af stað. Stækkanirnar fóru af stað, Hvammsvirkjun, Búrfellslundur, sem heitir núna Vaðölduveita eða hvað það nú er. (Gripið fram í: Vaðölduver.) Já, Vaðölduver. Við erum með stækkanir, ekki bara hjá Landsvirkjun heldur sömuleiðis HS Orku. Orkuveita Reykjavíkur er farin á fleygiferð. En hins vegar tekur allt langan tíma þegar kemur að jarðhitanum. Þeir vilja að vísu fara í vindorkuna líka. En ástæðan fyrir að ég hvet til þess að vera ekki með bara, getum við sagt, eina áætlun heldur koma með allt sem er mögulegt er sú að okkur liggur á, okkur vantar græna orku og á morgun mun okkur líka vanta græna orku og í næsta mánuði. Það veitir ekkert af því að vera með öll spjót úti. Það hefur, held ég, aldrei, alla vega ekki í mjög langan tíma, verið jafn góð sátt á hv. Alþingi um að leysa úr þessum málum og því meira sem er undir því betra.

Ég hef ákveðnar áhyggjur af því þegar menn segja að þeir ætli að setja fram tölusett markmið. Mér finnst t.d. tölusett markmið Samfylkingarinnar vera ansi lág. En menn hætta ekkert að deila um þessi mál þó að það séu komin tölusett markmið. Það var t.d. reynt að setja sand í tannhjólin á síðasta kjörtímabili og sú umræða er enn þá í gangi að segja að það megi bara nota orkuna í ákveðna hluti. Það megi ekki fara í orkuöflun nema hún sé örugglega að fara bara í þetta og þetta. Sú umræða mun fara af stað þegar menn ætla að setja tölusett markmið um hvað á að búa til mikla orku. Hugsunin er líka sú að þetta er markaður. Ef hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson ætlar að fara í einhverja atvinnusköpun, sama hver hún er, þá er umhverfið núna þannig — og þess vegna legg ég áherslu á að menn haldi áfram að setja kraft í smávatnsaflsvirkjanirnar og aðra litla hluti. Hv. þingmaður gæti samið við hv. þm. Bergþór Ólason, ef hann gæti búið til litla virkjun og hugsanlega notað orkuna í atvinnustarfsemi hv. þm. Njáls Trausta, svo við tökum bara eitthvert dæmi. Ætla menn að hafa allt þetta undir í einhverjum tölusettum markmiðum? Ætla menn að kanna það frá degi til dags hver er að fá viðskiptahugmynd og hver kemst að þeirri niðurstöðu að hann geti hugsanlega búið til einhverja orku? Ef menn fylgjast með því þá er þróunin í því að breytast með hverjum degi. Það eru alls konar hlutir að koma sem bæði nýtast til orkuframleiðslu, betri orkunýtni og sömuleiðis þegar kemur að því að geyma orku. Ég hef áhyggjur af þessu.

Ég er ánægður með að það á að halda áfram með jarðvarmann. Við settum 1,5 milljarða í jarðvarmaleit á síðasta kjörtímabili. Nú ætla menn bara að setja milljarð, ég vona að það verði bætt í þar. Það væri æskilegt því að það veitir ekkert af. Hér var líka samtal um vind á hafi sem er alveg sérmál.

Þegar menn skoða þessa skýrslu, og þar af leiðandi frumvarpið og í rauninni bæði frumvörpin, þá er hún mjög fróðleg. Hún er ekki löng, það er engum vorkunn að lesa hana, en sá sem les þessa skýrslu verður margs vísari. Ég ætla að vekja athygli á helstu tillögum sem mér sýnist flestar ef ekki allar vera komnar inn í frumvarpið, sem er gott. Frumvarpið er, sýnist mér, nokkurn veginn eins og það frumvarp sem hér er í skýrslunni. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir skýrari markmiðum, skilgreiningum og hugtakanotkun. Þar kemur þessi virkjunarhugmynd í staðinn fyrir virkjunarkost inn í frumvarpið. Í öðru lagi eru lagðar til skýrari kröfur í upphafi til gagna og upplýsinga um virkjunarkosti. Þar er sömuleiðis verið að herða á því, getum við sagt, hvernig unnið er og sömuleiðis á tímafrestum. Í þriðja lagi að ferlið verði í auknum mæli samfelluverkefni en eigi sér ekki einungis stað á fjögurra ára fresti.

Þetta gerðum við bara á síðasta kjörtímabili. Ég ákvað að biðja verkefnisstjórnina að vinna eins hratt og mögulegt var. Þess vegna er núverandi hæstv. ráðherra með tvo ramma sem eru tilbúnir, þriðji er á leiðinni og það er alveg gríðarlega mikill munur. Þeir eru litlir, alla vega miðað við þessa ramma sem hafa verið, sem gerir að verkum að það er einfalt fyrir þingið að klára þessi mál. En það er ekki bara einfalt, það er gríðarlega mikilvægt. Ramminn sem við kláruðum, sem var mjög stór, á síðasta kjörtímabili, var framkvæmdur eins og á að gera það. Það er þjóðkjörið þing sem ákveður það hver niðurstaðan er. Ef þjóðkjörnir þingmenn segja: Við ætlum ekki að hafa þetta í nýtingarflokki, við ætlum að setja það í biðflokk, þá er það bara allt í lagi. Til þess eru þingmenn kosnir. Alveg eins og þjóðkjörið þing setti kost sem var í biðflokki og setti hann yfir í nýtingarflokk. Það er verið að nýta hann nákvæmlega núna. Það sem er tilbúið núna er svo mikilvægt að komi inn í þingið því að okkur liggur á.

Í fjórða lagi aukin skilvirkni með fastákveðnum tímafrestum. Þetta er lykilmál. Þetta þýðir einfaldlega að tímafrestir miði við að niðurstöður um einstaka virkjunarhugmyndir og virkjunarkosti sem komi til meðferðar hjá verkefnisstjórn rammaáætlunar liggi almennt fyrir innan 24 mánaða ef gögn eru fullnægjandi og þær hafi þá borist Alþingi til meðferðar innan þess tíma. 24 mánuðir. Það er gríðarleg breyting, ef þetta frumvarp verður að lögum, að við séum komin með tvö ár.

Í fimmta lagi er í frumvarpinu að það verði eitt samráðsferli hjá verkefnisstjórn í stað tveggja. Í sjötta lagi er frestur sveitarstjórna til ákvörðunar um landnotkun styttur. Þetta er sömuleiðis mikilvægt. Þarf að klára það sem snýr að tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga? Já, en við getum ekki beðið. Þegar sveitarfélög hafa núna 15 ár til að liggja á kostum þá er ekkert að gerast, því miður. Það verður að klára þennan þátt, það verður að gera það.

Síðan kemur skýr heimild og skylda fyrir verkefnisstjórn að afmarka verndarsvæði í áætluninni og heimild fyrir ráðherra að veita undanþágu til matsskyldra rannsókna á virkjunarhugmyndum, eins og mér heyrðist hæstv. ráðherra fara í gegnum hérna áðan. Sömuleiðis er hér krafa gerð um að mat á áhrifum á vatnshlot samkvæmt vatnalögum liggi fyrir áður en virkjunarhugmynd er flokkuð í nýtingarflokk áætlunarinnar. Og að lokum um þessa helstu þætti, að það verði tímabundið átak í greiningu á landsvæðum með tilliti til verndar fyrir raforkuframleiðslu. Það er þá gert. Ef menn klára það þá þurfum við ekki á rammanum að halda, ef við ætlum að gera eins og Norðmenn. Það ætti að einfalda mjög allt þetta ferli, því auðvitað er í þessu eins og öðru æskilegt að það séu almennar leikreglur og menn viti að hverju þeir ganga. Það eru svo sannarlega gerðar kröfur til viðkomandi. En það er ekki gott, virðulegi forseti, hvorki í þessu né öðru að fyrirtæki sem standa í þessu, flest í opinberri eigu, geti aldrei treyst á það að hafa neinn fyrirsjáanleika í sinni starfsemi og þau séu háð ákveðnum duttlungum stjórnmálamanna. Það er ekki gott, hvorki í þessari atvinnugrein frekar en öðrum.

Þetta frumvarp sem var á þingmálaskránni hjá okkur í fyrri ríkisstjórn er núna komið hér fram og hafi bæði hæstv. ríkisstjórn og hæstv. ráðherra þakkir fyrir það. Það er gríðarlega mikilvægt. Það er liður í því að breyta þessu í grundvallaratriðum.

Mér er ekki alveg ljóst hvernig hæstv. ráðherra ætlar að fara með vindinn. Mér er svo sem nákvæmlega sama að því gefnu að við förum vel með náttúru landsins, í sjálfu sér er mér alveg sama hvað það er sem býr til græna orku. En okkur vantar græna orku. Það er ekkert núna, virðulegi forseti, sem getur gefið okkur græna orku jafn hratt, það tekur ekkert eins skamman tíma að framleiða græna orku eins og vindorka. Þannig er það. Og okkur vantar orku. Hjálpa stækkanirnar? Já. Hjálpa þær við framkvæmdir sem eru farnar af stað? Já, að sjálfsögðu. Jarðvarmaátök? Já. Smávatnsaflsvirkjanir? Jú, ekki spurning, við skulum ekki vanmeta þær. En það breytir því ekki að þetta tekur allt nokkur ár. Ef við erum ekki að fara að búa til meiri græna orku þá munum við nota aðra orku, olíu. Við munum nota norska olíu. Það er nú bara þannig að reglugerðarumhverfið í kringum þá starfsemi er mjög einföld. Það tekur skamman tíma að fara í raforkuframleiðslu sem er knúin áfram af olíu á Íslandi.

Ég bara hvet hæstv. ráðherra og hæstv. ríkisstjórn til dáða. Þetta er góður dagur en betur má ef duga skal, því að okkur liggur á.