verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Bara svo það sé sagt, ef einhver vill leita að olíu á Drekasvæðinu þá er það algerlega mér að meinalausu. Ég hef ekkert á móti því. Ég var bara að vekja athygli á þessu. Ég skal hins vegar viðurkenna að ég er upptekinn af íslenskri orku og mér brá svolítið þegar ég sá hvað við vorum litlir í þessum þremur verkefnum sem því miður hafa farið illa. Ég held að við Íslendingar höfum verið 7–14% en að langstærstum hluta var það norska olíufélagið og aðrir aðilar, síðast voru aðilar frá Kína. En það er fullkomið aukaatriði í þessu, við erum hér að hugsa um íslenska græna orku.
Varðandi tímalínuna, ef allt gengur upp, þá erum við að sjá innan fjögurra, fimm, sex ára verulega aukna framleiðslu. En þetta veltur á svo mörgu og þetta er miklu flóknara spil en var. Ég held að í hugum okkar hafi þetta alltaf verið þannig einhvern veginn að það er bara sett niður álver og stór virkjun, tengt á milli og svo notum við afganginn til að byggja upp raforkuframleiðslu á Íslandi. Við erum löngu farin úr þessu. Þetta er löngu búið. Það eru svo miklir möguleikar ef við ætlum að halda áfram að vera í fremstu röð. Þetta snýst ekki bara um að búa til orkuna, þetta snýst um hugvitið. Þetta snýst um að vera best í því að nýta jarðvarmann og alla þætti hans, þetta snýst um að vera best í því að búa til litlar vatnsaflsvirkjanir, vera best í því að byggja stærri vatnsaflsvirkjanir, vera best í því þegar kemur að vindinum að gera það þannig að það hafi sem minnstar neikvæðar afleiðingar. Reyndar er það þannig að það eru spennandi hlutir í gangi á öllum þessum sviðum í nýsköpun á Íslandi.
Við eigum að vera og við höfum verið Mekka grænnar orkuframleiðslu hér á Íslandi. Þetta snýr ekki bara að tækjunum og tólunum. Þetta snýr að stærstum hluta að hugvitinu því það er endalaus eftirspurn eftir grænu hugviti um allan heim, endalaus. Það að fara af stað í framleiðsluna gerir það að verkum (Forseti hringir.) að við erum að búa til allra handa nýsköpun, sem er mikil útflutningsvara. Þegar við fáum erlend fyrirtæki hérna inn þá erum við að flytja út og skapa aukin verðmæti fyrir íslenska þjóð og komandi kynslóðir.