156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[22:32]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir góða ræðu. Það er alltaf gaman að hlusta á hv. þingmann þegar kemur að þessum málum, hann brennur fyrir málinu og það gerir að verkum að maður leggur við hlustir. Ég velti fyrir mér í þessu samhengi því sem kom fram í hans ræðu varðandi þetta skipulag sem tengist rammanum og síðan tekur pólitíkin við. Pólitíkin getur farið í þá verkferla og það er þingið sem ræður og þingið getur tekið virkjunarkosti og fært þá fram og til baka og á milli flokka. Því langar mig að spyrja, af því að mér fannst ég ekki grípa það alveg akkúrat frá hv. þingmanni: Hver er besta leiðin? Eigum við kannski að fara þá leið að við segjum: Við leggjum bara rammann til hliðar, förum norsku leiðina og pólitíkin sér síðan um rest? En þá erum við væntanlega komin alltaf á sama stað, þ.e. það væri tiltölulega þægilegt í því umhverfi sem við erum í dag hér á þinginu með þessa 63 þingmenn sem hér sitja, varðandi fyrirsjáanleika fyrir þau fyrirtæki sem vilja fara að nýta þessa kosti. En við höfum verið í allt annarri stöðu, t.d. á kjörtímabilinu 2021–2024.