verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Nú erum við kannski ekki alveg sammála. Ég ætla að taka nokkur dæmi. Þessi atvinnugrein verður fyrir miklu meiri afskiptum og duttlungum stjórnmálamanna heldur en aðrar. Þetta er í rauninni svipað, af því að hv. þingmaður er ekki bara öflugur þingmaður heldur líka bóndi, eins og við þyrftum að taka ákvörðun um það hér á hverju vori hvað mætti slátra miklu að hausti. Við ættum að gera það á hverju vori en svo bara stundum förum við út í sumarið og bara klárum það ekki þannig að bændur landsins þurfa bara að sleppa því þetta haustið að slátra, frumvarpið kláraðist ekki. Og bæjarlækurinn t.d., jú, það var einfalt að virkja, en síðan kom ríkið og sagði: Hér er strengur, þú verður eiginlega að slökkva á virkjuninni ef þú ætlar að fá hann. Það verður ekkert einfalt að virkja bæjarlækinn núna nema menn hleypi fólki í það með einföldum hætti og þannig að það hafi einhverja sanngirni út úr því að selja inn á kerfið. Það var mitt markmið. Sérlögin voru bara þannig að þingið þurfti að ákveða hvaða fyrirtæki það yrði og hvaða orkukostur. Það var kannski ekkert einfalt. Kannski voru einhverjir menn búnir að hamast í þingmönnum og ríkisstjórninni og það gekk bara ekki neitt og þá gátu þeir ekki gert neitt. Auðvitað munu bæði þingmenn og sveitarstjórnarmenn koma að þessu, örugglega meira en í öðrum atvinnugreinum, en þetta er helst til mikið, virðulegi forseti, eins og það er núna. Þetta er helst til mikið. Ég held að aðrar atvinnugreinar myndu ekki sætta sig við þetta umhverfi eins og það er í dag. Almennt séð: Ef menn geta virkjað, sama hvað það er, með þeim hætti að það uppfylli þau skilyrði sem við erum sammála um þá held ég að flestir segja já og þá er bara mikilvægt að það gangi hratt og vel fyrir sig. (Forseti hringir.) Vandinn er að það gerir það ekki, m.a. vegna þess að afskipti stjórnmálamanna eru of mikil.