verndar- og orkunýtingaráætlun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er þannig að hvað sérlög varðar þá er það auðvitað bara útgefið — tökum sem dæmi Hvammsvirkjun. Hún er ekta mál sem hefði verið hægt að ramma inn með sérlögum, bara á þeim nótum sem Kárahnjúkar voru settir á koppinn forðum og ég hef talað fyrir því að kostir í nýtingarflokki rammaáætlunar gætu komið til skoðunar í þeim efnum.
Það er auðvitað í besta falli hjákátlegt sem hv. þingmaður nefnir varðandi afstöðu Orkuveitu þess tíma og ég held að það verði að segja að fyrrverandi forstjóri hafi kannski gengið harðast fram í að lýsa afstöðu til þess að ekki væri þörf á frekari orkuframleiðslu nú um stundir. Ég bara tek undir að auðvitað eru það eigendurnir sem þurfa að koma sér áfram með sín mál í hvert skipti.
Það sem hv. þingmaður sagði hérna áðan varðandi orkuspána — þar liggja auðvitað markmiðin fyrir og hv. þingmaður var að gjalda varhuga við því að menn væru að lögfesta markmið eða að markmið væru leidd út með þeim hætti sem hér er lýst. Til að mynda á síðasta kjörtímabili voru markmiðsákvæði beinlínis lögfest. Ég gagnrýndi það mjög mikið í þinginu á sínum tíma, markmiðsákvæði um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, þannig að ég get alveg deilt þeirri skoðun með hv. þingmanni að menn eigi að fara sér varlega í þeim efnum en fordæmin eru til staðar. (Forseti hringir.) Ég hef skilið þetta upplegg hér hjá núverandi hæstv. ráðherra þannig að ríkisstjórn hvers tíma þurfi að gefa þetta út (Forseti hringir.) en þetta sé ekki skrifað inn í lög hver hin tölusettu markmið eru.