verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Þegar kemur að svona lagasetningu er þetta í rauninni út í bláinn. Eina markmiðið sem við þurfum helst að ná er 2030 þegar kemur að þessu samstarfi. Þetta 2040 er náttúrlega bara óskilgreint og óljóst og engum — eða alla vega kannski ekki mikið gagn að því.
Það sem ég er að segja er að það tók sjö ár bara frá því að Kárahnjúkar komu inn í þingið og þangað til frumvarpið varð að veruleika. Hvammsvirkjun er allt annað. Þá kemur niðurstaða dómstóls sem enginn átti von á. Ég þekki það vel því að við reyndum að girða fyrir allt áður en það mál fór í gegn og þá kemur löggjafinn og segir: Við þurfum að breyta þessum lögum hér þannig að það sé ekki hægt að dæma þetta með þessum hætti. Það verður að einfalda þetta ferli þannig að það séu almennar leikreglur. Ef fyrirtækin þurfa að koma hérna hangandi fyrir utan dyrnar með hvern einasta virkjunarkost og spyrja hvort við séum til í að setja sérlög fyrir þau þá er ekkert að hreyfast í þessum málum. (Forseti hringir.) Ég geld varhuga við því. Við verðum að koma á almennum leikreglum eins og hægt er til að hlutirnir geti gengið hratt fyrir sig.