156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:04]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir prýðisgóða ræðu og hv. þingmaður fór vel yfir málið. Ég staldraði við áhuga hans á vindmyllum og deili ég nú að mörgu leyti ýmsum skoðunum hans hvað það varðar að halda svolítið fast utan um það og ekki vera að dreifa þessu vítt og breitt um landið heldur fara varlega og taka skrefin svona frekar minni en stærri. Eftir sem áður þá er það nú þannig að við erum með orkuspá og hún er á þann veg að við þurfum heldur betur, með leyfi forseta, að hysja upp um okkur og ganga svolítið rösklega til verks. Við erum með ákveðna kosti í vatnsafli, ákveðna kosti í jarðvarma, en ég velti fyrir mér í þessu samhengi þessum tveimur virkjunarkostum í vindafli, þ.e. Vaðölduver og síðan Blöndulundur, og mín spurning til hv. þingmanns er: Miðað við hvernig tíminn líður og hvernig atvinnulífið þróast og kröfur um meiri orku eru alltaf að verða meiri og öflugri, erum við ekki komin á þann stað að við þurfum að einhenda okkur enn frekar í þetta og við þurfum jafnvel að horfa á fleiri kosti sem snúa að vindorku heldur en bara þessa tvo kosti? Í því samhengi get ég nefnt vindorkugarð eða vindmyllugarð í Suður-Þingeyjarsýslu nálægt Húsavík eða á Melrakkasléttu.