156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:07]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það kemur hv. þingmanni væntanlega ekki á óvart að ég sé ekki tilbúinn að tala fyrir einhverjum vindmyllugarði utan þeirra tveggja sem eru innan rammaáætlunar, sem ég greiddi atkvæði með, sem ég held að verði, ég veit ekki hvort við eigum að kalla það tilraunaverkefni, „pilot“-verkefni þar sem við reynum að koma okkur upp reynslu í þessum efnum. Það er auðvitað gagnrýnt líka að þau verkefni eru bæði á hendi Landsvirkjunar, ríkisfyrirtækisins, það eru ýmsir einkaaðilar sem vilja komast áfram með sín verkefni. En ég er ekki með tímalínuna í kollinum varðandi hvenær er áætlað að það sé raunhæft að ná orku út úr þessum tveimur tilgreindu verkefnum Landsvirkjunar. Mér sýnist hv. þingmaður vera að gera sig tilbúinn til að nefna þann tímaramma — svo er ekki. Ég held að við séum, því miður, má segja, dálítið á þeim stað að við erum búin að valda okkur allnokkrum sjálfsskaða hvað orkuframleiðsluna varðar og við verðum, bara eins og Landsnet hefur stillt upp í spá sinni, fyrirsjáanlega með orku- og rafmagnsskort næstu ár miðað við þörfina. Í öllu falli, ef við ætlum að ná einhverri vitrænni umræðu um aðra kosti í vindorku, þá þurfum við að nálgast það allt öðruvísi heldur en gert hefur verið undanfarið og ég held að það sé sömuleiðis í raun allt öðruvísi heldur en þeir átta eða tíu kostir, ég man ekki töluna, ég held að þeir séu átta sem eru inni í þeim áformum sem núna eru til skoðunar í fyrstu yfirferð stjórnvalda. (Forseti hringir.) Ég held að við séum enn þá með skóginn allt of þéttvaxinn í þeim áformum sem verið er að skoða.