156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:11]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Verandi friðardúfan sem ég er þá er ég auðvitað alltaf til í að ræða mál sem eru sett fram á skynsamlegan máta og af hófsemi. Ég held að það sé, alla vega eins og áform liggja fyrir núna, býsna langt í það, sýnist mér, að við séum komin með einhverja nálgun, einhvern ramma í þessum efnum sem mönnum mun annars vegar hugnast að ræða af einhverju viti en síðan eru líka þættir eins og hversu mörg slík ver kerfið ræður við að taka á móti í svona skemmri framtíð í þessu samhengi. Þetta eru allt saman upplýsingar sem mér finnst að væri æskilegt að stjórnvöld legðu á borðið fyrir okkur þingmenn til að glöggva okkur á. En eins og áformin birtast núna þá held ég að það sé ólíklegt að við komumst eitthvað að ráði áfram. Og eins og hæstv. ráðherra kom inn á hér í andsvari fyrr í umræðunni (Forseti hringir.) þá eru ekki áform um að leggja fram ramma sem innifelur vindorkukosti, a.m.k. ekki á þessu þingi, og ekki fyrr en lagarammi (Forseti hringir.) um vindorku hefur verið lögfestur ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt. Þannig að þar strax erum við komin með töluvert tímagap sem þarf þá einhvern veginn að brúa í samhengi við það sem hv. þingmaður er að stilla upp hérna.