156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:14]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta var nú dálítið persónulegt, hann var að spyrja mig hvort ég talaði mikið við sjálfan mig, en það er auðvitað eitthvað sem flest okkar gera í einhverju samhengi, ég af og til. Ég hef sagt í þessum efnum að á meðan við eigum jafn marga góða kosti í vatnsafli og jarðvarma sem við þekkjum jafn vel og raunin er, þá eigi slík nálgun að vera í forgrunni. Við eigum að leggja áherslu á það. Það hefur árum saman verið allt að því einhver svona skömm í kringum vatnsaflskosti og ekkert síður þá sem eru í nýtingarflokki en aðra. Ég held að við eigum að hætta að nálgast orkuframleiðslu með vatnsafli og/eða jarðvarma með þeim hætti og hefðum auðvitað aldrei átt að gera. Þetta er bara einhver hreinasta orka sem hægt er að framleiða í heimi.

Varðandi vindaflið, af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um það, þá hef ég talað á þeim nótum að við ættum að fara varlega í þeim efnum. Ég hef til að mynda ekki verið hrifinn af því þegar ég hef verið á akstri um Skotland og séð svona gríðarlega þéttan vindmylluskóg. Það er ekki hægt að kalla þetta annað en einhvers lags þéttvaxna vindmylluskóga. Mér hefur ekki þótt þetta mikið augnayndi. Það eru ákveðin verkefni, til að mynda, ef við horfum á þessi 40–50 verkefni, þessar hugmyndir sem uppi eru, sem eru á býsna viðkvæmum svæðum sem ég held að muni alltaf þvælast fyrir vitrænni umræðu um þá kosti sem mögulega eru á svæðum sem sátt getur orðið um. Það er einhver innbyrðisárekstur innan stóru myndarinnar sem ég held að valdi því, að hluta til a.m.k., að ekkert verður komist áfram með umræðuna af nokkru viti. (Forseti hringir.) Ég held að það væri skynsamlegt, eins og ég sagði áðan, að grisja þennan skóg dálítið hressilega og sjá hvort þá verður einhver flötur á að ræða verkefni (Forseti hringir.) í einhvers lags sátt við nærumhverfi sitt.