156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:18]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar. Það er einmitt þetta stórumyndarsamtal sem mér finnst okkur vanta svo oft hér í þessum sal. Kannski er það að einhverju marki af því að leiðbeiningu stjórnvalda hefur oft á tíðum vantað. Þetta var t.d. hluti af umræðunni um hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar sem voru síðan ekki hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar. Þetta var bara fín vinna, það komu hugmyndir frá fólki úti í bæ og síðan var öflugur stýrihópur sem vann úr þessu með hjálp gervigreindar og svo ekki söguna meir. Ég gagnrýndi þar m.a. að ríkisstjórnin legði ekki einhverjar línur gagnvart því hvar stóru tölurnar væri að sækja, sem ríkisstjórnin væri til í að fara í pólitískan slag eða aðgerðir til þess að ná fram. Á meðan leiðbeining stjórnvalda hvers tíma liggur ekki fyrir er svo ólíklegt að nokkur árangur náist. Það sem hv. þingmaður segir hér, að fimm, sex verkefni gætu verið raunhæfari heldur en það sem við erum að horfa á í dag, held ég að sé miklu líklegri nálgun (Forseti hringir.) til að ná einhverri sátt í þessum efnum. En á meðan verkefnin eru 40–50 eða hver sem talan er þá auðvitað horfa menn bara á þá mynd teiknast upp og ræða málin út frá því. (Forseti hringir.) Ég held að það þurfi að vera framar í röðinni að sú lína leggist einhvern veginn þannig að hægt sé að ræða hana og hún er mun skynsamlegri heldur en það sem blasir við okkur núna.