156. löggjafarþing — 23. fundur,  1. apr. 2025.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

268. mál
[23:20]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu á þessu tímamótamáli og því góða framhaldi sem byggist á ákveðinni vinnu sem fyrrverandi hæstv. ráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, setti af stað 2021 þegar sá hópur sem var stofnaður þá lagði af stað með sína vinnu.

Virðulegur forseti. Ég held að klukkan sé eitthvað skrýtin. Mér finnst líklegt að ég eigi meira en 20 sekúndur eftir. [Hlátur í þingsal.]. Við erum ekki orðnir alveg svo dasaðir, klukkan er bara rétt rúmlega 23. (Gripið fram í.) Já, gervigreindin hefur tekið völdin. En að öllu gamni slepptu þá hefur umræðan verið áhugaverð, hvernig við tökum utan um þessi mál. Það er alveg ljóst að okkur liggur á. Þetta er búinn að vera mjög fróðlegur og góður dagur með öllum þeim frumvörpum sem hæstv. ráðherra hefur komið með inn í þingið varðandi einföldun á leyfisveitingum, varðandi það að fylgja úr hlaði því sem snýr að rammanum og hvernig við eigum að vinna þetta o.s.frv. Mér finnst það sömuleiðis mjög athyglisvert og umræðunnar vel virði hvernig við sjáum síðan framhaldið fyrir okkur. Hvernig tökum við utan um þetta? Við vitum að í enda dags verður það alltaf þannig að það verður pólitíkin sem kemur til með að skera úr um og færa á milli flokka, þ.e. í vernd, nýtingu og bið.

Við sáum það hér þegar ramminn var kláraður vorið 2020 að þá var ákveðið stórt skref stigið og þar náðist ákveðin sátt um virkjunarkosti og því var fylgt eftir. Síðan fengum við hér fyrir nokkrum vikum annað mál þar sem var búið að færa til aftur, þar var t.d. búið að færa virkjunarkosti í Skagafirði úr bið og setja þá yfir í vernd. Væntanlega verður það þá hv. umhverfis- og samgöngunefnd sem kemur til með að snúa því við núna í kjölfar umræðu sem hefur átt sér stað hér í þinginu og örugglega athugasemda sem koma til með að berast um málið. Pólitíkin kemur því sennilega bara í nýtingarflokk því að þessi virkjunarkostur er mjög aðkallandi, þ.e. Skatastaðavirkjun. Hún er, eins og farið var yfir, sennilega sá virkjunarkostur sem er skynsamlegastur á allan hátt í öllum þeim jarðhræringum sem við eigum í í dag. Við höfum verið að tala um þetta í umræðum sem snúa að öryggi landsins, sömuleiðis þjóðaröryggi og mikilvægum innviðum og við þurfum að taka þetta allt til greina. Þess vegna finnst mér mjög margt gott og áhugavert sem kemur fram í þessu frumvarpi.

Það er sömuleiðis mjög áhugavert að lesa umsagnirnar. Þegar maður les umsagnir frá Landvernd, Ungum umhverfissinnum og fleiri aðilum þá sér maður hversu hratt pólitíkin getur breyst. Við sjáum það núna á þessu þingi og á þessu kjörtímabili sem núna er að í sjálfu sér ganga eiginlega allir 63 þingmenn bara nokkurn veginn í takt og eru sammála um að það þurfi meiri orku og við þurfum að nýta virkjunarkostina sem í boði eru. En við verðum samt alltaf að hafa það í huga að við verðum líka að ganga svolítið hægt um gleðinnar dyr þegar kemur að því, við erum ekki að fara að virkja alls staðar. Við erum ekki að fara að reisa hér vindmyllugarða um allar koppagrundir eins og hv. þm. Bergþór Ólason kom inn á áðan. Ég er honum alveg sammála í því að við verðum að fara varlega. Það nákvæmlega sama á við um virkjunarkosti í vatnsafli og jarðvarma og við verðum alltaf að horfa líka til náttúrunnar. En við megum samt ekki fara í þann farveg að ætla bara að segja: Nei, það er enginn orkuskortur, það er stóriðjan sem segir að sé orkuskortur og það er ekkert að marka það sem hún segir. Það eru náttúrlega engin rök í þessu máli, það er bara þannig. Það er ákall eftir orkunni. Orkan er bundin samningum við stóriðju langt fram í tímann, til margra ára. Það eru gagnaver og ég tala nú ekki um landeldisfyrirtæki sem kalla eftir orku. Það er talað um að það vanti 200 MW t.d. bara í Ölfusi í landeldinu.

Við þurfum orku, það er alveg ljóst. En það er ekki nóg að virkja bara. Við þurfum líka að geta flutt orkuna. Þess vegna var svo mikilvægt í dag að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra var hér með frumvarp sem snýr að einföldun á leyfisveitingum. Við vitum það alveg að við stöndum frammi fyrir gríðarlega miklu verkefni og snúnu sem snýr að því að koma Blöndulínu í virkni, sömuleiðis Holtavörðulínu 1 og 3, því það er ekki nóg að virkja. Við þurfum að geta flutt orkuna milli landshluta og það er risastórt mál. Við getum alveg virkjað eins og í Norðausturkjördæmi fleiri læki og þar er nægur jarðhiti o.s.frv. og við getum jafnvel bætt við einhverjum vindmyllum, ég held að það væri nú bara vænlegur kostur á Melrakkasléttu eða við Húsavík. (Gripið fram í.) Hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson segir að það sé alltaf logn á Húsavík. Ég kannast nú ekki við það eftir að hafa spilað þar knattspyrnu sem ungur maður, að það sé alltaf logn á Húsavík, en vissulega getur alveg orðið gott veður þar. En það er alveg útilokað mál að reisa vindorkugarð í Grýtubakkahreppi, þar er alltaf logn. En nóg um það.

Áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir sem þjóð, til þess að við náum að viðhalda þeim vexti sem við viljum að sé í okkar atvinnulífi og verðmætasköpun sem stendur undir velferðinni, eru þannig að við verðum að taka svolítið á því varðandi það að þessir tveir lykilþættir, flutningur orkunnar og vinnsla á orku, hvort sem er í vatnsafli, jarðvarma eða vindorku — þetta samspil verður að virka.

Það er mjög áhugavert að fara yfir umsagnir sem fylgja þessu frumvarpi frá því að það var í samráðsgátt. Ég kom inn á hér áðan umsagnir frá Landvernd og Ungum umhverfissinnum og við eigum vissulega að taka það alvarlega og náttúran á að njóta forgangs. En það er nú einu sinni þannig að við getum alveg nýtt náttúruna á vissan hátt, hvort sem við erum með vindorku, jarðvarma og sums staðar náttúrlega vatnsafl líka, og það verða alltaf einhverjar fórnir færðar. Það er nú einu sinni þannig. Við skiljum alltaf eftir okkur fótspor þó að við sjáum það ekki sjálf. Við verðum bara að viðurkenna að það þýðir ekki að segja að maður gangi yfir grænt engi, svo ég setji þetta fram í myndlíkingu, og halda því síðan fram að hann skilji ekkert eftir sig. Það er nú einu sinni þannig í öllu því sem við gerum að hver einasta lífvera skilur alltaf eftir sig ákveðið fótspor. En okkar verkefni er að reyna að lágmarka fótsporið sem við skiljum eftir okkur.

Við horfum til þess að nýta græna orku. Við viljum fasa út jarðefnaeldsneyti. Það er okkar markmið. Þá verðum við að fara þá leið að virkja meira, það liggur alveg fyrir. Við þurfum í því samhengi að huga að samspilinu á milli vinnslu og flutnings. Þessi rammi hér hjálpar okkur verulega mikið en það verður samt alltaf þannig að pólitík hvers tíma kemur til með að ráða úrslitum um það hvernig þetta fer. Við þekkjum það alveg að þó svo að við setjum okkur einhver markmið um að þetta eigi að vera svona eftir tíu ár — hvað tók ferli Hvammsvirkjunar mörg ár, 25 ár? Það eru kæruferli og annað sem þar hafa komið inn í. Ekki ætla ég að gera lítið úr því. En við þurfum miklu fleiri bolta á loft vítt og breitt um landið, ekki bara að horfa á einn kost í einu. Þó að það sé sagt að hér hafi ekki gerst neitt á undanförnum árum þá er búið að virkja gríðarlega í Svartsengi og bæta þar við fjöldanum öllum af megavöttum á því svæði. Það eru áform uppi á Hellisheiði sömuleiðis og norður á Þeistareykjum er verið að skoða ákveðna kosti þannig að það er búið að gera mjög mikið þó svo að við höfum ekki verið að taka í gang nýjar vatnsaflsvirkjanir. Hamarsvirkjun er sú næsta.

Síðan hafa verið teknar í notkun þó nokkrar smávirkjanir, ein í bakgarðinum heima hjá mér, Hólsvirkjun, virkilega flott og vel heppnuð virkjun, framleiðir 5,6 MW. Raforkan fer öll með streng inn á Akureyri og þar eru tækifæri á að bæta við. Sunnudalsvirkjun í Vopnafirði er nýlega komin í gang og það er verið að horfa á fleiri svona minni virkjunarkosti á Austurlandi. Það er verið að ýta á það af sveitarstjórnarfólki á Austurlandi að Hamarsvirkjun fari úr vernd og í biðflokk eða jafnvel nýtingu. Það væri hægt að taka inn 60 MW úr þeirri virkjun þannig að það er margt í pípunum. Við þurfum að halda þessu þannig að við séum með marga kosti uppi í einu sem eru í nýtingu, hvort sem er í jarðvarma, vindafli eða vatnsafli.

Virðulegi forseti. Ég er bjartsýnn á framtíðina hvað þetta varðar, sérstaklega miðað við samsetninguna á þeim þingmönnum sem sitja hér enn í salnum og hafa tekið þátt í umræðunni og með fyrrverandi ráðherra í hliðarsal, hv. þm. Guðlaug Þór Þórðarson, sem hefur hvatt okkur hér óspart áfram og sýnt dugnað í verki hvað það varðar að koma þessum hlutum í þann farveg sem hæstv. núverandi ráðherra hefur fylgt verulega vel úr hlaði. Ég vænti þess að þingheimur einhendi sér í þessi verkefni og við keyrum þetta svolítið áfram því það er lykilatriði. Við þurfum að svara því kalli sem fram undan er, (Forseti hringir.) það vantar hér meiri orku og við þurfum að gera eitthvað í því.